Í dag var síðasti dagurinn hjá KBB og krökkunum á leiklistarnámskeiðinu hérna í bæjarleikhúsinu. Endaði með sýningu á söngleiknum Fríða og dýrið. KBB lék Gogga geðlækni, Diljá var pabbi hennar Fríðu og svo lék Andrea eina af ljóskunum. Krakkarnir brilleruðu eins og von var á og við foreldrar og vinir skemmtum okkur konunglega á sýningunni.
Eins og lög gera ráð fyrir hittist allt á sama daginn. KEB fór klukkan tvö á Laugaveginn ásamt vöskum Ármenningum og þau gengu á höndum niður götuna. Þau stóðu sig glimrandi vel krakkarnir og skiptust á að rölta þetta á hvolfi. Eftir að KEB hafði gengið á höndum smá spotta var hann dreginn í viðtal hjá RÚV svo það má eiga von á því að sjá drenginn í kvöld í fréttum eða Kastljósi - veit ekki hvort.
Á eftir ætla ég svo að kíkja á krakkana sem fljúga til Danmerkur aðfaranótt laugardags þar sem þau æfa atriðið sitt í síðasta sinn. Svo þarf að pakka stráknum í tösku til að hann sé tilbúinn á morgun. Nenni ekki að það vanti eitthvað annað kvöld og ég orðin of sein að bjarga málunum. Ætla því að klára þetta í kvöld til að sjá hvort við séum ekki búin að redda öllu og með allt á hreinu. Þetta er svona allt að smella saman.
Svo þegar hann kemur heim drengurinn þá fer drottningin sama dag í Vindáshlíð. Þetta ætti að vera skemmtilegt sumar hjá krílunum mínum þrátt fyrir að foreldrarnir fari ekki í eitthvert massíft frí og með allt planað. Skorradalurinn og dagsferðir eru málið í sumar :o) Ritgerðin bíður mín spennt núna. Ætla að byrja aftur að græja í henni um helgina. En vinnan er líka að þvælast fyrir mér í bili - jöggla þetta eitthvað samhliða - það ætti nú að vera hægt. Það hlýtur einhver að vita hvar maður kaupir auka klukkutíma í sólarhringinn, svo margir að spyrja um slíkt.
Later

Ummæli