Fara í aðalinnihald

Gert er ráð fyrir stormi...

Í gærmorgun var ég að horfa út um eldhúsgluggann og velti fyrir mér að bjóða vinkonu minni í göngutúr á Lágafellið. Hún gæti þá hlaupið laus og veðrið var skítsæmilegt og spáin ekki sérstök um kvöldið. En ákvað að láta vinnuna ganga fyrir og fór ekki neitt.

Að kveldi dags sagði ég BH að hundgreyið mætti nú alveg við göngutúr, klukkan ekki nema 21:30 og veðrið dýrvitlaust. Létum það ekki stoppa okkur og drifum okkur út, mjög vel klædd í hlýjar og vatnsheldar flíkur. Urðum holdvot á 10 sekúndum sléttum, vettlingar okkar beggja rennandi en fötin voru að halda sæmilega. Það var sums staðar svo mikið rok að við stóðum ekki í lappirnar. Nokkrum sinnum hallaði ég mér fram og lét vindinn um að halda mér uppi - svona eins og litlu krakkarnir gera, alla vega ég þegar ég var litli krakki.

Svo ef vindurinn kom á hlið við okkur þá hölluðum við í 40 gráður í vindinn til að okkur yrði ekki feykt eftir götunni :o)

Hundurinn? Hún var sko að hafa það gott í veðrinu, þetta er Husky veður, því verra því betra. Litla montprikið með rófuna upp í loftið og nefið líka til að taka vindstigin. Já nema í verstu hviðunum sem komu beint í andlitið - þá lagði skottan niður eyrun og pírði augun pínulítil til að hlífa sér. Öðru hvoru var svo hristur allur kroppurinn og vatnið hrökk af henni í allar áttir - þið vitið eins og ofurljóskurnar þegar þær sveifla hárinu til að hrista úr því vatnið.

Verst var að fá endemis rigninguna í andlitið - hún kom á svoddan ofurhraða að það var verulega sárt. Svona eins og stór haglél í andlitið.

Komum heim ansi veðruð, blaut og ánægð með okkur.

Hins vegar var ég enn kátari í morgun þegar ég vaknaði og sá að snjórinn var aftur kominn. Skil ekki hvað fólk hefur á móti snjónum, hreint og bjart, þannig er umhverfið í snjónum. Allt skárra en svarta rigningin og rokið, maður verður bara þunglyndur í svoleiðis veðri vikum saman.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vá hvað ég er sammála - frekar snjó en rigningu - var einmitt á aðventutónleikum í Mosfellskirkju þetta kvöld og við héldum að kirkja ætlaði í sundur en Diddú tókst að yfirgnæfa vindinn ;0)
Hlakka til að fá göngutúr með ykkur og Hörpu og hundunum ;0)
kv Maddamamma

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...