Fara í aðalinnihald

Tíst...

Gengur ágætlega að gera það sem ég vil vera búin með fyrir miðvikudaginn. Sultaði í gær og kláraði það. Þreif í dag, þó ég viti alveg hvernig þetta verður hjá mér á morgun - skítugt. Nú bíður mín lopapeysa sem ég á aðeins eftir að festa tölurnar á. Græja það núna bara - glápi á eitthvað í sjónvarpinu á meðan. Á morgun þarf ég að klára að græja allt sem viðkemur Danmerkurferð frumburðarins. Svo þarf líka að klára allt sem heitir mánaðarmót hjá Rögg og hérna heima. Ætla í garðinn á eftir líka og eftir matinn. Ekki veitir af - aðeins smá andlitslyfting áður en ég fer og verð óvinnufær í smá tíma. Hugsa að ég láti öðrum fjölskyldumeðlimum eftir að slá grasið. Sé til.

BH er nú ekki byrjaður á því sem hann ætlar að græja fyrir mig. En það verður vonandi gert á eftir. Veit af fenginni reynslu að ég get ekki lesið uppdópuð og vitlaus að drepast í hálsinum. Þannig að ég dreif mig á bókasafnið og tók hljóðbækur. Maður verður að bjarga sér. Því miður sé ég ekki að ég geti eða nenni að hafa hjá mér eitthvað til að glápa á bíómyndir. Verð bara að vona að það sé eitthvað af viti á stöð 2 og bíórásinni og að í herberginu sé ekki einhver sem þolir illa "hávaðann" í sjónvarpinu eins og áttræða þýska (yndislega) konan sem deildi með mér herbergi síðast. Ég er svona að vona að hljóðbækurnar stytti mér stundir. Ekki mikið úrval á bókasafninu hérna í Mos - SBK benti mér á blindrabókasafnið en ég fer þangað næst ef ég ætla að ná mér í hljóðbækur. Náði í nokkrar, flestar á ensku. Spillti ekki fyrir að þegar ég spjallaði við HMS í gær þá var hún að lofa í hástert eina söguna sem ég hafði gripið með mér. Ætli ég verði ekki háð svona hljóðbókum núna. Stundum nefnilega vildi ég að ég gæti lesið um leið og ég gerði eitthvað annað - t.d. festa tölur á lopapeysu :o)

BH ætlar því að koma þessum sögum á ipod sem ég fæ til umráða og á örugglega aldrei eftir að skila aftur. Ásamt tónlist og einhverju. Allt gert til að tíminn líði hraðar, er strax farin að hlakka til að komast heim aftur. Ég geri ráð fyrir að koma heim aftur á föstudaginn - tveir dagar og þá er manni sparkað heim aftur. Hjúkk - miklu betra að jafna sig heima. Þá hreyfir maður sig meira og er fljótari að koma til. Ég alla vega, af fenginni reynslu, veit að ég hangi í rúminu á spítalanum og er komin með í bakið og með legusár því ég nenni ekki að skoppa um gangana eða í setustofuna. Svo ég vonast til að koma heim á föstudaginn til að geta tekið þátt í partýum helgarinnar - já eða bara til að hafa það kósý heima.

Mitt helsta áhyggjuefni í kringum þetta allt saman eru raddböndin - höndla það ekki að þau verði fyrir hnjaski. Hvernig á ég að hvæsa á hunda, börn og eiginmann og halda þeim í skefjum ef ég A) get ekki talað nema eitthvað hvísl eða B) verð svo skrækróma að fólk hlær sig máttlaust ef ég segi orð ? Slapp síðast betur en áhorfðist sem betur fer og nú vona ég að "meiddin" séu nógu aftarlega á hálsinum til að raddböndin séu alveg óhult fyrir hnífnum. Vitiði hvað er erfitt að vera með alveg kraftlausa rödd. Er ekki að tala um smá hæsi, ekki einu sinni svæsið hæsi - heldur alveg máttlausa rödd. IT IS HARD PEOPLE! Held að ég hafi hrætt raddböndin í gang síðast með garginu í mér - þurfti eitthvað að skammast.

Lopapeysan er að kalla á mig - best að festa þessar tölur, þá get ég strikað enn eitt verkefni af listanum mínum fína :o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
þú ofvirka vinkona, gangi þér rosalega vel í þessum verkefnum og mundu að láta liðið hjálpa til því þú þarft að hugsa um þig sjálfa mín kæra. Hlýjar kveðjur frá mér kv. Madda
Lóa Björk sagði…
Já ég man að þau eiga að hjálpa til - þau gera það :o)

Talandi um ofvirkni - líkur sækir líkan heim sennilega ;o)
Nafnlaus sagði…
Gangi þér vel á morgun Lóa og vertu dugleg að láta dekra við þig, bestu kveðjur, Heiða

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...