Fara í aðalinnihald

flutt út

Ég ákvað í gær að drífa í að slá grasið því ég vissi að það myndi sennilega rigna um helgina. Hélt ég myndi drukkna í eigin svita þarna því það var svo heitt úti. Ákvað að láta það eftir dóttur minni að tjalda litla tjaldinu bara þrátt fyrir rigningarspá. Hún er hæstánægð með þetta og svaf að sjálfsögðu þarna úti í nótt. Bara ein - engin vinkona í þetta sinn eins og alltaf áður. Henni er alveg sama, trítlaði bara út eftir sjónvarpsgláp og bauð góða nótt. Pabbi hennar var steinhissa og þegar hún kom inn aðeins aftur taldi hann víst að hún vildi ekki vera ein þarna. Bauð henni að hann myndi sofa líka úti í tjaldi, hvort hún myndi vilja það - "helst ekki" var svarið sem hann fékk. Henni finnst bara fínt að vera ein með bækurnar sínar.

Í morgun kom hún inn til að borða og bursta tennur en hefur verið síðan úti í tjaldi. Vinkona hennar er í heimsókn hjá henni og þær eru þarna úti, koma ekkert inn.

Þannig að drottningin er flutt út.... út í garð :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...