KEB fór í gær kl. 15 og sótti einkunnir sínar á skólaslitum. Ég verð að viðurkenna að ég beið spennt eftir árangri hans því hann hefur verið mjög upptekinn í vetur og sérstaklega núna í vor. Allskonar hátíðir, sýningar, tónleikar, æfingar, keppnir, skólahreysti og fleira. Hann var reyndar sæmilega duglegur að halda sér að bókunum þegar að prófum kom. Tók sér frí frá blaðburði til að þurfa ekki að vakna alveg eins snemma og svona. En einkunnir hans eru metnar allt árið með verkefnum, ástundun, litlum prófum og svo stærri prófum í annalok. Svo ég var nokkuð spennt að sjá hvað kæmi út úr þessu hjá honum. Og það virðist vera að hann sé líkari föður sínum en móður hvað varðar próflestur og nám. Því þó hann hafi kíkt í bækur þá er ekki hægt að segja að hann hafi setið sveittur fram á kvöld og alla daga. Og hann brilleraði bara eins og venjulega - allt áttur, níur og tíur - ok ein sjö og sjöfimm - en við vorum spriklandi ánægð með gaurinn okkar :o) Svo fékk hann sérstaka viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í skólahreysti og einnig fyrir íþróttir. Kemur ekki sérstaklega á óvart :o) Hann fékk bók um 25 gönguleiðir í RVK og nágrenni. Ég ákvað strax að nýta þessa bók í sumar og drífa fólkið og hunda í göngur. Alltaf gaman að fara nýjar leiðir á nýjum stöðum.
Svo kl. 16 fór ég með KBB þegar hennar skólaári var slitið. Ákvað að skoppa með henni því þetta er síðasta árið sem hennar bekkur er saman sem ein heild. Það á að fækka bekkjum í hennar árgangi úr fjórum í þrjá. Svo einhverjar breytingar verða en ég vona samt að Rósa komi til með að kenna drottningunni minni áfram. Þeim kemur svo ágætlega saman. Ég veit að allir foreldrarnir í bekknum hugsa það sama um sín börn og kennarann þeirra :o)
Ég var svo ánægð með þessi skólaslit því við vorum rétt sest niður þegar ræðuhöld voru búin. Öllu orðagjálfri haldið í lágmarki og krakkarnir máttu fara inn í sínar stofur og ná í einkunnir hjá kennaranum. Þetta tók allt innan við 20 mínútur og við mæðgur voru á leið heim aftur. Svona á að gera þetta.
Það er skemmst frá því að segja að KBB brilleraði ekki síður en bróðir hennar. Nánast bara níur og tíur. Held að hún hafi samt fengið eina sjöfimm og það var í sundi - hún var nú ekki að skilja það sjálf en við rífumst ekki við dómarann :o) Svo var hún svekkt að fá ekki 10 í textíl því hún prjónaði svo voðalega fína ungbarnapeysu sem litla Katla María Ísis er búin að fá og máta og vera í við hin ýmsu tækifæri. Ásamt því sem hún gerði eitthvað meira fínt. Nían var semsagt ekki nógu góð fyrir hana :o) Ég hins vegar tek níuna anytime og kvarta ekki :o)
skólavormontinu er þá lokið í ár... Eða var ég búin að segja að þau brilleruðu bæði í tónlistarskólanum líka? Þau alla vega gerðu það og fengu fínar einkunnir og umsagnir þar líka. Nú er ég hætt :o)
Later

Ummæli