Well - ritgerðarsmíð í dag BArnið mitt verður að veruleika þó síðar verði. Í dag ætla ég að koma handskrifuðum upplýsingum í Excel og reyna að skipuleggja þetta allt þannig að auðvelt verði að skrifa uppúr þessu. Svo ætla ég að koma lista á blað yfir allt sem ég ætla að lesa til að afla mér upplýsinga frá spekingum sem vita allt betur en ég. Þegar þessu er lokið, vonandi í dag, þá er ég ready á safnið á morgun til að ná mér í fleiri og ítarlegri upplýsingar til að troða í Excel skjölin mín.
Ritgerðin gengur svona hægt og bítandi. Verð að viðurkenna tregðu mína til að eyða öllum deginum dagsdaglega á safninu. Það er bara svo einstaklega döh að vera þarna og þurfa að fara í mat eitthvað annað - sérstaklega þegar maður er einn, frekar léleg í því. Steinunn reyndar er þarna líka mikið og við höfum stundum fengið okkur kaffi saman. Brýtur upp daginn. Svo hef ég skottast til ömmu í Miðtúni líka - aldrei leiðinlegt að spjalla við ömmuna sína. En ég hef oftar en ekki fengið mér bara hádegismat heima og drifið mig svo niðureftir og verið til um kl. 17 þegar lokar. Þá þarf ég ekkert að sækja neitt út. Sé til hvað ég verð dugleg þessa viku - reyna að nota tímann áður en safnið lokar allann júlí, sumarfrí. Hentar reyndar ágætlega, ætla að lesa bara í júlí. Held ég taki ekki mikið af myndum af heimildum til að vinna heima - sé til samt. En er grounded anyways alla vega hálfann júlí - sé til hversu lengi ég verð tekin út umferð í þetta sinn. Ætti ekki að vera nema tvær vikur ef allt gengur vel. Alla vega þannig að ég geti unnið heima í rólegheitum :o)
KBB er búin að vera heima síðan skólinn fór í sumarfrí. Mikið verið ein að skottast en nú er hún komin á námskeið hjá bæjarleikhúsinu, leikgleði kallast það. Þrjár vikur, tveir tímar á dag og þau setja upp Þumalínu söngleik 8.júlí - vona að ég komist. Annars verður BH sendur með vídeótökuvélina. Svo er hún að spá í að fara á námskeið hjá Rauða krossinum. Eldri borgarar sjá þar um að miðla þekkingu og reynslu til yngri kynslóðarinnar. Mér finnst þetta skemmtileg hugmynd og vona að henni eigi eftir að finnast gaman. Svo kemur hápunktur sumarsins hjá henni 16. júlí, þá ætlar drottningin í Vindáshlíð og hún er nú þegar farin að skjálfa úr spenningi.
KEB hins vegar er búin á BootCamp námskeiðinu sem fimleikakennarinn hans bauð krökkunum uppá. Og fimleikarnir eru komnir í sumarfrí. Svo nú er hann bara á æfingum næstu þrjá daga fyrir Eurogym og bíður spenntur eftir að komast til Danmerkur. Hann mætir í unglingavinnuna á hverjum morgni eftir að hann ber út moggann. Í morgun og næstu tvo morgna er hann með aukahverfi svo ég vakna með honum og tek helminginn. Það er gott fyrir mig að drullast út með honum því annars fer ég seint að sofa og sef til hádegis. Það er ekki nokkurt uppeldi á mér. Annars segi ég öllum sem heyra vilja að ég sé að æfa mig fyrir júlí - vera í náttfötunum frameftir öllu og hanga í rúminu. Það krefst mikils undirbúnings.
Núna hins vegar ætla ég að byrja á ritgerðarvinnu dagsins... tek rabarbarann samt í hádeginu þegar drottningin kemur heim aftur. Hún ætlaði að vera með mömmu sinni í sultugerð og tók loforð um að ég myndi ekki byrja án hennar :o)
Later

Ummæli