Fara í aðalinnihald

Allt og ekkert

Átti að vera uppdópuð af verkjalyfjum núna eftir skurð á Landsspítalanum. En er þess í stað heima að reyna að koma mér að bókunum að lesa. Þessu var frestað fram á mánudag og mér lofað að ég yrði fyrst á færibandið þann morguninn. Þannig að ég mæti fersk 7:15 á Landsa á mánudagsmorgun.

Valentínusardagur í dag, hmmm gerði ekki mikið úr honum er ég var í USA og því gerum við hjónin ekki mikið úr honum í dag. Held mig við Bónda- og konudaginn, BH heldur sig við þá hugmynd að gera e-ð fyrir þann sem maður elskar þegar honum dettur í hug - ekki á fyrirfram ákveðnum dögum - gróðadögum kaupmanna. Sennilega dettur honum aldrei neitt í hug því ég er heppin ef hann man eftir afmælinu mínu he he. Kannski fullmikil alhæfing en samt ekki... Ég er búin að læra að ef ég vil eitthvað þá hef ég frumkvæði að því sjálf. T.d. á morgun (ekki í dag) þá ætla ég að draga hann með mér í bíó og kannski út að borða. Vorum búin að ákveða að sjá Brúðguman í bíó og því verður sú mynd fyrir valinu. Nú er bara að sjá hvort við stöndum við það og drífum okkur eða gerumst sófakartöflur og horfum bara á bíómynd hérna heima - ótrúlega oft sem það gerist eftir að við höfum ákveðið að drífa okkur út og svo nennum við ekki þegar til kemur.

Fór í klippingu í gær - ekki í frásögur færandi nema ég fór að kvarta yfir að þurfa alltaf að slétta úr hárinu á mér til að hafa það almennilegt. Finnst ferlega fúlt að vera alltaf með ull á hausnum ef ég slétti ekki úr því. Er ekki með þetta rennislétta hár sem ég öfundaði Fríðu vinkonu svo af þegar við vorum litlar. Veit ég er ferlega eftir á - en Íris benti mér á að kaupa mér bara froðu, skella henni í blautt hárið, klípa það til og láta það svo bara þorna. Yikes hvað ég var glöð - ef það skyldi virka. Ekkert að blása eða slétta eða greiða hárið - hljómar vel. Prófaði í morgun og viti menn mín bara með liðina út í loftið og samt sómasamleg til fara. Er nefnilega með mátulega liðað hár, engar krullur kannski en liðað. Eitthvað á ég eftir að nota þessa froðu, nenni nefnilega sjaldnast að hafa mikið fyrir þessu.

Lesa meira um fósturbörn og barnavernd og fleira...

Later

Ummæli

Lata húsmóðirin sagði…
Heyrðu ég keypti eitthvað sem heitir glimmer dropar eða eitthvað man það ekki alveg og það á víst að slétta hárið alveg svakalega :O)
Lóa Björk sagði…
þyrfti að komast í það kannski - annars er ég dugleg að nota bara sléttujárnið það svínvirkar :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...