Ég er að verða léttgeggjuð á hangsinu hérna heima. Fer ekkert nema með einhverjum öðrum - nenni þessu ekki lengur og ætla að taka yfir bílinn vonandi á morgun eða hinn. Ferlega heftandi að vera háður öðrum um alla snúninga.
Núna er planið að koma sér í ritgerðagír. Ein risa ritgerð - halda áfram að undirbúa hana eitthvað. Ein lítil ritgerð (svona í samanburði alla vega), byrja að ná í lesefni fyrir hana og búa til spurningu til að vinna eftir. Og svo ein pínuritgerð - kallast framsaga, finna efni til að skrifa um (datt í hug Landakot áðan) og finna lesefni og spurningu til að svara. Þannig að það er svona nettur ritgerðakvíði í gangi og ég er mjög dugleg að lesa Moggann bara í staðinn fyrir að koma mér að verki. En nú þarf að fara að drífa í þessu því ég er búin með sunnudagsmoggann og hálfnuð með mánudagsblaðið. Ef ég þekki mig rétt þá glugga ég í Fréttablaðið líka til að teygja lopann.
Later

Ummæli