Þá er afmæli drottningarinnar formlega lokið og þetta gekk allt saman ljómandi vel. Hún bauð vinkonum sínum í partý sem haldið var hjá Stjörnustelpum og það vakti mikla lukku. Held þær hafi allar sagst ætla að halda sín afmæli þarna næst. Þær fengu að fara í búninga, þemað var rokkstjörnur, svo fengu þær allar hárgreiðslu og förðun í anda poppstjarna. Þetta var ekki alveg leiðinlegt. Tvær konur sem sáu um að þær væru allar fínar og flottar. Stelpurnar hlupu þarna um og dönsuðu og skemmtu sér mjög vel. Farið var í leiki áður en þær fengu að borða. Ég þurfti ekki að hafa fyrir neinu, mjög amerískt eitthvað. Settist inn á kaffistofu og las í skólabókum á meðan aðrir sáu um partýið. Dálítið svona döh, en ég get ekki kvartað, hlustaði á og fylgdist aðeins með og gat nýtt tímann í lestur samt. En þetta verður ekkert gert aftur, næsta ár verðum við bara hérna heima eins og venjulega. Aðalatriðið er að þær voru allar í skýjunum eftir þessa tvo klukkutíma.
Karlotta var alsæl um kvöldið, að springa úr ánægju með veisluna sína og hlakkaði óskaplega til að fá fjölskylduna sína daginn eftir í afmæli. En fór með tárum í rúmið því hún var svo spæld að þurfa að taka fínu hárgreiðsluna úr sér áður en hún færi að sofa. Ég varð að útskýra fyrir henni að hún yrði að greiða sér aftur áður en gestir kæmu í afmælið daginn eftir. Hún var svo svekkt og sár að ég sagðist ætla að reyna að gera bara svona aftur í hárið hennar daginn eftir. Skoðaði herlegheitin vel og vandlega til að geta gert þetta aftur. Og þá nefndi hún að við ættum ekkert litasprey til að lita aftur í toppinn. Púff þessar stelpur. Svo ég hringdi daginn eftir á hárgreiðslustofuna hérna í bænum og athugaði málið - jú þær áttu litaspray og glimmer. Þau feðgin ruku í það mál að redda því. Svo ég mátti greiða drottningunni í stíl við daginn áður og spreyja lit í toppinn og glimmer í hárið. Tókst svona líka ljómandi vel og brosið náði allann hringinn. Hvað gerir maður ekki fyrir krílin sín til að þau séu ánægð? Alla vega á afmælisdaginn.
Fjölskyldan streymdi að um þrjúleytið og við mátulega tilbúin, allt á réttum tíma - maður er orðinn þokkalega vanur þessu stússi. Gjafirnar voru hver annarri flottari að venju og Karlotta var ánægð með öll fínheitin - þrátt fyrir margar gjafir fékk hún slatta pening líka, hvernig verður þetta þegar hún fermist barnið?
Birthday organiser

Ummæli