Fara í aðalinnihald

Haga seglum eftir vindi

Ætlaði að vinna og fara svo í alls konar búðir - Max, Ikea, finna sumarblóm o.fl. En svo var bara svo gott veður og við Davíð ákváðum að fá eiturpésann í dag sá sagðist koma kl. 17. Ég rauk í það að fá vélina hjá Davíð og slá AGAIN og ekki veitti af, nú er þetta eins og það á að vera. Það er svo flott að líta út í garð núna að ég sit bara við gluggann. En gaurinn kom ekkert að eiturúða garðinn og það á að rigna á morgun og þá vil ég ekkert fá hann, þannig að ég er mátulega spæld. En svakalega er garðurinn flottur mar. Í rigningunni á morgun er planið að fara í verslunarleiðangurinn sem ekkert varð af í dag.
Baldvin talaði við mig í gær og sagðist ekki mundu hringja frá Tyrklandi, heyrði bara í mér aftur á fimmtudaginn. Ástæðan - það er svo hrikalega dýrt að hringja þaðan að maður borgar aleiguna fyrir að sögn Þrastar (starfsmanns Símans). En gaurinn hringdi samt í dag oftar en einu sinni - ég er ómótstæðileg, I know. Eða hann fékk símakort til að hringja með og þarf ekki að borga eins mikið :)
Eftir vinnu í garðinum og setu í sólinni á pallinum við lestur enduðum við krakkarnir hjá tengdó í mat og þaðan sendi ég krakkana í sund til að baða sig og skemmta sér í klukkutíma. Á von á þeim any minute now. Held að Karlotta hafi brunnið aðeins í dag, smá Aloa Vera ætti að bjarga því.
Jamm þau komin hún brunnin og eiturpési kominn til Davíðs og á leið hingað á eftir, horfir allt til betri vegar. Búin að smyrja á dömuna Aloa Vera og gefa þeim ávexti fyrir svefnin og er alveg að losna við þau inn í rúm. Held bara að ég reyni að aulast snemma inn í rúm líka - smá lestur og svo bara sofna snemma til að geta vaknað snemma yeah right, eins og það sé ekki planið á hverju einasta kvöldi.

Blómálfurinn

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...