Nú eru krakkarnir að klára skólann og samkvæmt venju eru Lágafellsleikar síðustu tvo dagana. Hmm þetta er ekki fyrsta sinn sem veðrið leikur sér að þeim (ekki við þau). Það er eins og síðustu ár hafi verið nákvæmlega svona veður þegar þau eru úti að keppa í alls konar skemmtilegum íþróttum á leikunum. Karlotta óð upp á Helgafellið í morgun - vona að þau fjúki ekki niður aftur. Það átti að grilla uppi og hafa það kósí en það var hætt við það vegna veðurs, mjög gáfulegt. Þannig að í morgun fóru þau bara í regnföt og hlý undirföt til að takast á við íslenska sumarveðrið. Þegar litið er á dagatalið þá er kominn júní mikil ósköp, en þegar litið er út um gluggann þá er haust, alla vega hér í Mosfellsbænum þar sem trén bogna niður í jörð í mestu hviðunum. Vonum bara að þetta skáni - kannski er þetta bara til að hreinsa loftið fyrir molluna sem verður hérna í sumar, hvaaa má maður láta sig dreyma....
I´m off then, berjast út í veðrið og takast á við daginn, farin í vinnuna.
Lóa
I´m off then, berjast út í veðrið og takast á við daginn, farin í vinnuna.
Lóa
Ummæli