Ég sem hélt að stelpurófan gæti farið i skólann í dag... Það var svo sem ljóst í gær að svo yrði ekki, hún getur varla komið fram í hálfa mínútu og þá skortir hana þrek til að sitja upprétt eða standa. Illt í maganum líka, ekki svona æluverkir samt, hitalaust en vantar alla orku.
En elskulegur bróðir hennar ákvað að halda henni félagsskap í dag og er heima hundslappur líka.
Sem betur fer eru þau ekki hálfmeðvitundarlaus með háan hita og vesen, en þetta er hundfúlt ástand samt. Ég er búin að eyða vikunni í að spá í dag til að halda afmælið hans og var búin að setja laugardaginn sem markmið en þar sem ömmur og afar eru með læti yfir glötuðum tíma í sumarbústað og ég vil gjarnan eiga helgina fyrir okkur þá var ég komin á það að nota föstudagskvöldið - bjóða liðinu í mat kl. 19. Búin að fastsetja það í huganum þegar hann ákveður að vera heima í dag... og ég ákvað þá að það yrði ekkert afmæli um helgina :o)
Hann getur þó ekki kvartað því á þriðjudaginn var lítið matarboð hérna, ma og pa og amma og SBK kíktu í smá heimsókn. Og í gær mættu svo átta galvaskir 14 ára víkingar og skemmtu sér vel saman yfir bíómynd og BUZZ Hollywood spurningaleiknum. Þannig að hann ætti að vera sæmilega sáttur. Og ef hann vill endilega hafa afmæli fyrir fjölskylduna þá verður það sennilega bara á mánudaginn sem ömmum og öfum og systkinum okkar BH verður boðið í mat með öllum sínum ávöxtum :o)
Later

Ummæli