Fara í aðalinnihald

Sjaldan fellur...

Var að lesa blöðin áðan og sé að það er allt vaðandi í útsölum... besta mál en ég er víst ekki að fara neitt að notfæra mér það. Spurði KEB hvort hann vantaði eitthvað en mundi ekki eftir neinu sjálf. Hann svona niii vantaði ekkert nýbúinn að bæta í skápinn sinn en nefndi þó að það væri þá kannski helst húfa sem vantaði á kollinn svona þegar fer að kólna.

Ég mundi þá eftir að hafa gengið framhjá búð hérna í Þverholtinu sem aðeins er opin á milli 16 og 18. Þar voru fullt af húfum, reyndar mundi ég bara eftir stelpuhúfum. En við ákváðum að skella okkur bara og kíkja því klukkan var nýorðin 16. Urðum reyndar að drífa okkur því drengurinn þurfti að ná strætó 16:30 í fimleika.

Gengum inn í búðina og mest voru þetta dömuhúfur sem blöstu við okkur. En pjakkurinn var ekki lengi að pikka út húfu sem hann vildi, tók svona um 5 sekúndur sléttar. Verð að viðurkenna að ég hefði aldrei valið þessa húfu handa honum, reyndar flottasta húfan í búðinni, en ég hefði ekki haldið að hann myndi vilja hana samt.

Þetta er ekki svona skopparahúfa með deri heldur svona loðfóðruð húfa með svona eyru - æ þið vitið... Og svo er hún grá köflótt með svörtum og rauðum röndum - hrikalega flott. Hann er alla vega vel vopnaður í göngutúra út í buskan í frostinu í vetur.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...