Fara í aðalinnihald

Laugardagsrölt

Erum á leið í bæjarferð ég og krakkarnir - vantar smávegis og þarf að flækjast á milli búða. M.a. Ikea - ekki minn uppáhaldsstaður og sérstaklega ekki um helgar. Les svo í blöðunum að það er sko afmælisveisla og kaka kl. 13 - fátt sem ég nenni minna en svona troðningur. Ætla að vera farin þegar þetta byrjar allt saman :o/ En er heppin að hafa séð þetta áður en ég lagði af stað því síðustu helgi átti ég erindi í Hagkaup í Smáralind og þegar ég kem þar að ásamt BH komumst við að því að von er á hæsta manni í heimi fljótlega. Svo við þurftum að troðast þarna í gegnum hersinguna sem saman var komin til að heilsa uppá karlinn.

Svo sá ég manninn er hann gekk í gegnum Hagkaup og framhjá snyrtivörudeildinni og VÁ hann er STÓR - yikes mar.

Well farinn í bæinn og vona að ég verði komin heim um kl. 13. Það er töluvert skemmtilegra að eyða deginum úti í móa eða uppá fjalli með hunda hlaupandi í kringum mann (eða frá manni LoL).

Við KEB ætlum svo í Salinn í Kópavogi kl. 17 á tónleika. Þar mæta tveir ungir herramenn, annar spilar á píanó og hinn þykir einn færasti klarinettuleikari Norðurlanda. Svo við ákváðum að skella okkur og hlusta á herlegheitin. Miðinn kostar 2.800 krónur - púff þótti það heldur mikið. Þegar ég hringdi til að fá miða fór konan að telja upp þá sem eru með afslátt og m.a. krakka í tónlistarnámi - vúhú, KEB fékk sinn miða á 1000 kall - en minns átti að borga fullt gjald. En ákvað að spyrja hvort ég gæti ekki notað afsláttinn hennar KBB, hvort ég væri frek þá? Nei hún hélt nú ekki og seldi mér tvo miða á 2000 krónur samtals - hjúkk - ég var mjög sátt við það :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...