Hundarnir fóru fyrstu sleðaferðina í ár. Hrúguðum saman sjö stykkjum og hentum einum kúski aftan á sleðann. Okkar þrjú hafa ekki verið í mikilli hreyfingu undanfarna daga og það var alveg farið að sjást hérna á heimilinu. Þau hafa verið í mjög mikilli hreyfingu undanfarna mánuði meira og minna og því er þol þeirra mjög gott og þau líta öll vel út með góðan vöðvamassa.
Við náðum í Keano en Auður og Sara komu með brjálæðingana sína og við skoppuðum út í hraun og fundum okkur veg þar sem nægur snjór var til að geta verið á sleðanum. Það var á örfáum stöðum sem Auður, kúskur, þurfti að lyfta sleðanum aðeins því steinarnir stóðu upp úr snjónum.
Þannig að Úlfur og Keano voru aftastir, þá komu Rökkvi og Ronja, Jaki var einn á línunni og svo fremst herra Leo og skottið hún Amyra.
Hér má sjá þau bíða eftir að fá leyfi til að drífa sig af stað.
Það er skemmst frá því að segja að þau ruku af stað og þau hlupu vel allan tímann. Þau fóru rúma 10 km inn eftir og þá var snúið við og við ákváðum að þau myndu hlaupa tilbaka því þau pústuðu ekki og voru enn í fullu fjöri. M.a.s. Ronja hljóp eins og skrattinn væri á hælunum á henni og gaf ekkert eftir. Þannig að Auður fékk ansi magnaðan 21 km fyrsta túr í snjónum - þurfti ekkert að gera, bara standa á sleðanum og halda sér :)
KEB bað um snjó og BH vill meina að hann hafi því reddað snjó... pabbinn gerir allt sem börnin hans biðja - jájá það er bara þannig sem við rúlum á þessu heimili ;)
Later

Ummæli