Helena og Davíð eignuðust lítinn fallegan strákapjakk í gær, 28.07 ´07. Allir alsælir og glaðir með hve vel gekk og móður og barni heilsast vel. Við krakkarnir vorum í Skorradalnum og vorum spennt að bíða eftir fréttum. BH og Lilja komu í mat til okkar en fóru svo seinna um kvöldið. Við fengum SMS skeyti og símtöl allt kvöldið með alls konar upplýsingum. Bráðnuðum alveg þegar við fengum mynd senda af prinsinum, hann er bara æði. BH og Lilja kíktu til litlu fjölskyldunnar upp á deild og þar voru Smári og Helena stolt afi og amma líka. Baldvin mætti í bol með mynd af stráknum á, dundaði í því að búa hann til áður en hann fór til þeirra, það vakti mikla lukku. Þar sem drengurinn á allt sem lítið kríli þarfnast er það kemur í heiminn var ákveðið að láta verða af því að gefa honum GSM síma með númeri, það er það eina sem snáðann "vantar". Það er því hægt að senda honum SMS í síma 895-3203 og bjóða hann velkominn í heiminn. Skeytin verða vafalaust lesin fyrir hann af foreldrunum.
Við eigum eftir að kíkja á guttann, vonandi getum við smellt á hann kossi í kvöld, annars bara á morgun. Krakkarnir eru svooo spennt að sjá hann, finnst hann æði, (af myndinni af dæma).
Týri verður sóttur í kvöld, hann veit það ekki ennþá, en við vitum það, hann verður glaður þegar hann verður sóttur. Hann fer yfirum af hamingju. Það er alger brandari að sjá þegar hann tekur á móti Svandísi, hann gjörsamlega springur af gleði. Ég verð hálffegin þegar hann fer. Það er mjög bindandi að hafa svona hund í heimsókn, krakkarnir samt búin að sjá heilmikið um hann og hjálpa til. Hefði verið mun erfiðara án þeirra. Svo er ég eins og köttur hérna, alltaf með svona hairball í hálsinum, mjög óþægilegt.
Mjá

Ummæli