Fara í aðalinnihald

Garðpartý

Er varla að trúa því hve gott veður er búið að vera undanfarnar vikur. Þó það rigni undanfarið þá er veðrið yndislegt. Það þornar allt á mettíma aftur og allir sáttir. Í dag var okkur boðið í afmælið til Óttars Snæs sem varð 7 ára gamall, hann er sonur Dagrúnar vinkonu. Helena tók Týra fyrir mig á meðan, þar svaf hann allann tímann. Þetta var rosa afmælisveisla, búið að slá upp langborði úti í garði, hoppukastali og rosalegar veitingar. Yndislegt að geta verið úti með öll þessi börn að leika sér. Á leiðinni heim komum við við í Laugardalnum og kíktum á tónlistarmarkaðinn. Krakkarnir fundu enga gáfulega tölvuleiki né tónlist, voru heldur skúffuð. En ætli þau verði ekki sátt þegar kemur að því að þau langar í eitthvað ákveðið og þau eiga peninginn sinn ennþá.

Talaði við pabba í gær, hringdi í þau til Kanada. Hann varð 55 ára og átti frábæran afmælisdag heyrðist mér. Þau voru lengst upp í sveit með Óðni og Jönu í vínsmökkun þegar ég hringdi, voru sem sagt alveg í essinu sínu. Ég fer til Kanada einn daginn það er alveg ljóst, sögurnar þaðan eru alltaf jafn skemmtilegar og lýsingar á umhverfi æðislegt. Það er sjö klukkutíma mismunur á milli Íslands og Vancouver, það er slatti. Ég hringdi 12 á miðnætti og þá var sól og fínt hjá þeim, klukkan 5.

Ég er svona að gera það upp við mig hvort ég eigi ekki bara að skella mér í sumarbústaðinn í kvöld, ætlaði að fara í dag en fórum í afmæli kl. 15. Kannski ég fari bara í fyrramálið - er eitthvað svo þreytt núna. Á eftir að tína allt ofan í töskur, ekki að það sé mikið mál - bara að byrja. Þarf að skrölta þetta á bílnum hennar Svandísar, er jú með voffa líka. Annars er bíllinn hennar fínn, hún fjárfesti í Nissan Terano nýlega. Ég verð alla vega í Skorradalnum um helgina ef einhver er í bíltúr og langar upp í sveit. Baldvin ætlar að vera heima eitthvað og vinna en kíkir kannski á laugardaginn, hver veit.

Svandís kemur að sækja Týra á sunnudagskvöldið. Eitthvað verður það mikið fjör, hann verður alltaf svo ánægður að sjá hana aftur, gjörsamlega bilast úr hamingju. Svo kvartar hann líka smá, eins og við séum ekki búin að stjana við hann. Krakkarnir búnir að vera svo duglegir að fara með hann út og vera með hann. Við Baldvin fórum t.d. út í gær um kl. 20 og komum ekki heim fyrr en að verða miðnætti. Og það var bara ekkert mál, ég er alltaf jafn hissa hvað börnin mín eru orðin stór.

Við fórum aðeins út á braut í gær til að keyra - ekki að mig hafi langað ó nei - keyrðum tvo hringi, omg, hélt í hverri beygju að við færum útaf. Varð líka hálf flökurt á þessum látum, ekki þoli ég nú mikið. Það voru þarna um 10 bílar að keyra og var BH að keyra um 6 sekúndum hraðar en sá sem kom næstur, ekki slæmt það. Mar er bara The next Mrs. Schumi ha ha ha.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...