Fara í aðalinnihald

Holiday

Held bara að flestir séu í fríi þessa dagana, vona það svo fólk geti notið góða veðursins. Annað eins þekkist ekki síðan mælingar hófust. Í Norður- og Miðevrópu er fólk vælandi og orðið þunglynt vegna mikillar rigningu í sumar. Ég er ekki að hafa fyrir því að vorkenna þeim mikið - þannig eru flest okkar sumur. Kominn tími til að breyta aðeins til og leyfa sólinni að skína hérna hjá okkur eitt sumar. Sennilega áratugir þartil landinn upplifir annað eins á fósturjörðinni. Er fegin að hafa ákveðið að eiga sumarfrí hérna heima í ár. Kannski við bregðum okkur næsta sumar til útlanda. Fengum þó forsmekinn af því sem koma skyldi í London í maí, fengum rigningu alla dagana nema einn.

Playstation vélin sem við keyptum 18. maí bilaði í síðustu viku, fórum með hana á verkstæðið í Elko mánudaginn 9. júlí. Er það bara ég eða er þetta stuttur líftími á rándýrri græju? Föstudaginn 13. júlí var ég ekki sátt við að þurfa að bíða lengur eftir nýju tæki úr viðgerð. Hringdi í Elko og fékk að bíða eftir gaurunum á verkstæðinu smá stund, var svo sagt að hann hefði brugðið sér frá. Bað um að þeir hringdu í mig og sagði ástæðuna fyrir að ég væri að hringja. Hélt einhver í alvörunni að þeir myndu hringja í mig? Ekki ég. Þannig að ég hringdi aftur 45 mínútum seinna. Konan á skiptiborðinu sendi mig viðstöðulaust inn á verkstæðið án þess að taka upp og segja mér að það væri á tali, eða hvort ég vildi bíða lengur, eða bara eitthvað. Ég beið í 25 mínútur, bara á þrjóskunni. Á það til að gleyma svona síðan þar til búið er að loka öllu. Ákvað að hringja aftur og sagði konunni að mér finndist 25 mínútur ansi langur tími að bíða eftir starfsmanni í símann. Hún tilkynnti mér þá að viðkomandi væri farinn í mat. Bíddu bíddu, farinn í mat, hvað ætlaði hún að láta mig bíða lengi á línunni??? Ég sá það langar leiðir að ég fengi ekki að tala við neinn í símann, var á leið út til að redda þessu sláttuvélakassamáli. Já það er rétt, er ekki enn kominn með réttann kassa í vélina og búin að slá með Davíðs vél í allt sumar með góðum árangri. Hann var pantaður í dag - vonandi kemur réttur kassi. Alla vega, fór líka í Elko í Skeifunni í leiðinni. Talaði við gaurana í tækjamóttöku einhverri. Þeir voru mjög almennilegir, annar þeirra fór að gá að þessu fyrir mig, tók smá tíma þannig að ég og krakkarnir fórum inn í búð að athuga leiki í PS3, skipta út leik sem KEB langaði ekki að eiga. Við leituðum og leituðum og fundum ekki, leituðum meira og meira en sáum ekki PS3 leiki. KBB fór á kassann og spurði um leikina og var bent á leitarsvæði okkar, leituðum meira en sáum ekkert, blindu við. Ég spurði starfsmann sem stóð hinum megin við rekkann og hann bara benti þar sem ég stóð og ég sá ekkert, ég spurði hann aftur og hann bara benti, hálfpirraður á okkur blinda fólkinu. Nennti ekki að aðstoða okkur fyrir fimm aura. Þarf að taka það fram að það sauð á mér akkúrat núna. Þessir leikir eru ekki alveg ódýrir og ef þeir hafa ekki áhuga á að benda mér á þá, kaupi ég þá bara í BT. Fór til almennilegu drengjanna sem voru að gá að vélinni fyrir mig og hann rauk í málið og sýndi mér þá. Verð að viðurkenna að ég sá þá ekki þó hann stóð og benti með fingurinn á leikina, þeir eru ekki næstum eins áberandi merktir og PS2. Aumingjans maðurinn þurfti að segja pirruðu mér að vélin væri ekki tilbúin og hann vissi ekki hvenær hún yrði komin tilbaka. Þeir gefa sér sko 10 virka daga til að gera við svona tæki.
Ég dró djúpt andann og (var mjög kurteis, engin frekjulæti) sagði honum að það þætti mér heldur langur tími. Tekur sex vikna gamalt tæki og gefur sér 2 vikur til að gera við það. Halló - kannski það ætti bara að virka og ef ekki þá vil ég bara fá nýtt takk fyrir. Ég spurði hann hvað þeir myndu gera ef ég kæmi með nýtt sjónvarp sem væri bilað - myndu þeir taka það bara í 2 vikur og ég sæti eftir með ekkert sjónvarp? Hann svaraði mér nú ekki, þótti þetta bara leitt, þannig að ég endurtók bara hvað þeir hefðu gert ef þetta hefði verið sjónvarp? Hann sagði mér að þeir hefðu lánað mér annað á meðan, ok þá. En ég sagði aumingjans manninum að þetta þætti mér heldur léleg þjónusta (með símaþjónustuna og búðarfólkið í huga líka). Benti honum á að BT væri ekki uppáhaldsbúðin mín, þar væri oft slöpp þjónusta en þeir hefðu þó séð sóma sinn í að skipta bara út nýju tæki, ekki halda því í tvær vikur og gera við það. Tilkynnti honum að ég myndi aldrei versla þarna aftur. Honum brá dálítið - spurði hvort BT skipti út svona tölvum. Jamm þegar PSP-inn hennar KBB datt í gólfið þá skiptu þeir honum út, og það var okkar sök og í raun ekki ábyrgðar tjón. (sagði honum það ekki.) Hann var mjög almennilegur og ætlaði að athuga þetta er hann færi rúnt á verkstæðin en hann gat engu lofað, allt í góðu ég fór heim. Seinnipartinn var hringt í Baldvin og hann fór og sótti nýja vél. Hann hefur ekki viljað láta okkur bíða lengur, pirraða tölvupakkið.
Málið var ekki það að fá endemis tölvuna fljótar tilbaka, vil bara ekki láta hafa okkur að fífli. Maður kaupir ekki rándýrar græjur sem bila innan 6 vikna og bíður svo þar til röðin kemur að manni innan 10 virkra daga, þ.e. 2 vikna. Þessi fyrirtæki eiga að sjá sóma sinn í að kíkja strax á ný tæki og gera við þau samdægurs helst eða skipta þeim út. Látum vera ef tölvan hefði verið 2 ára, þá hefðum við bara beðið róleg.

Kjartan Elvar sló grasið fyrir mig í dag, ekki slæmt að eiga stóran strák. Hann er alltaf duglegur að hjálpa mömmu sinni. Ryksugar hérna reglulega líka. Flýtir heilmikið fyrir mér. Ég vökvaði trén á meðan og blómin. Svo var farið í að vökva grasið. Er ekki búin, klára það á morgun. Krakkarnir eru úti í garði að sofa í tjaldinu. Notaði tækifærið fyrst þau voru úti og þreif hérna hjá okkur. Hef ekki nennt því almennilega því veðrið er búið að vera svo gott að maður stekkur bara út um leið og maður vaknar. Þá er um að gera að nota kvöldin í innivinnuna.

Ég er svona að velta því fyrir mér að kíkja í Skorradalinn með krakkana. Það er bara gaman að breyta um umhverfi aðeins. Það er góð tilfinning að vera búin að þrífa hérna inni og garðurinn í ágætismálum ef ég vil fara í sumarbústaðinn aðeins. Sjáum til, tek þá kannski með mér föndurdót eitthvað og svo náttlega nóg að lesa. Er að lesa núna Elsku Poona norsk sakamálasaga, pínu í anda Arnaldar Indriða. Hún er skemmtileg - legg hana varla frá mér.

Fór ekki í sund með krökkunum í morgun því ég fór að vinna. Skelli mér kannski á morgun, þetta er fín laug þessi nýja hérna. Aldrei að vita nema ég syndi kannski smá, þarf að hreyfa mig eitthvað, finna eitthvað sem hentar.

Ms. Nagger

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...