Ég verð alltaf dálítið pirruð þegar ég heyri eða les fréttir um kjána sem búa sér til sprengjur úr púðri - rörasprengjur og þvíumlíkt. það er alveg vitað hversu alvarlegar afleiðingar þetta getur haft í höndum kjána sem ekki kunna með þetta að fara. Og það sannast ítrekað með því að þetta springur í höndunum á þeim. Oft eru þetta óharðnaðir unglingar sem finnst þetta mjög spennandi og sniðugt. Þetta eldist nú yfirleitt af þeim samt sem betur fer.
Þrátt fyrir að hlakka ekki yfir óförum þeirra sem svo óheppnir eru að sprengja sig í tætlur þá verð ég víst að viðurkenna að ég hef litla samúð með þessum gaurum. Auðvitað er frábært þegar betur fer en áhorfir í fyrstu. En því miður fer ekki alltaf vel. Aumingjans vitleysingurinn sem liggur nú sofandi á spítalanum á ekki mína samúð - hann getur sjálfum sér um kennt og hann er orðinn fullorðinn. 23 ára gamall og enn að fikta með flugelda til að búa til sprengjur. Ég vona að hann nái bata en samkvæmt fréttum þá verður hann sennnilega ekki heill aftur eftir þessi ósköp. Við getum þá bara vonað að þetta verði einhverjum þarna úti víti til varnaðar og að drengir (oftast drengir) hugsi sig 2x um áður en þeir fikta með efni sem þeir kunna ekkert að fara með.
Einn vinur okkar komst í fréttir í kringum áramót er við vorum unglingar. Hann einmitt sprengdi nánast af sér hendurnar blessaður. En í hans tilfelli fór betur en áhorfðist og hann er heill heilsu í dag með alla útlimi í lagi, guði sé lof, og ég er viss um að hann hafi hætt að eiga við púður eftir þetta.
Foreldrar eiga að hamra á þessu við gaurana sína að taka ekki þátt í svona vitleysu - reyna alla vega að koma í veg fyrir að börnin þeirra sprengi sig eða vini sína í tætlur.
Later

Ummæli