Amman mín á afmæli í dag - 88 ára gömul - geri aðrir betur :o)
Hún býr enn heima hjá sér og alltaf svo notalegt að kíkja í heimsókn í Miðtúnið. Aðeins orðin þreytt í fótleggjunum og nú ber aðeins á því að hún sé byrjuð að gleyma atburðum. T.d. man ekki eftir því að KEB fermdist síðasta vor - enn meira hissa að sjá myndir af sér í veislunni því hún man ekkert eftir að hafa verið þar.
En engu að síður fullfær um að sauma pínuponsu spor til að búa til skemmtilegar myndir, pússlar risapúsl og hefur ekkert fyrir því, ræðir heimsmálin og hefur skoðun á öllu, les heilmikið og fylgist vel með.
Vona að ég verði svona flott 88 ára kerling með hvítt hár - (hún kallar sig alltaf kerlingu).
Til hamingju með daginn amma mín :o)

Ummæli