BH setti myndir á flickr hjá sér - já já bara hundar, okkur finnst þau flott :o)
Það er búið að vera rólegt hjá okkur hérna um helgina. Ég hékk heima í gær latari en venjulega. Hélt að það væri ekki hægt en kom sjálfri mér á óvart. Er reyndar að myndast við að prjóna peysu á lottuna mína svo aðgerðaleysið var ekki algjört.
BH var öllu duglegri og snattaði eitthvað í kringum smíðina á sleðanum sem verður vonandi að veruleika sem allra fyrst. Viktor bauðst til að hjálpa honum við smíðina og það eru því allar líkur á að þetta fari að ganga eitthvað núna. Töluvert skemmtilegra að vera tveir að vinna saman en að rolast einn úti í bílskúr. Þeir voru saman í þessu í gær í kannski tvo tíma og græjuðu eitthvað og voru ánægðir með afraksturinn. Svo bara drífa þeir sig aftur og klára þetta með því að taka sér tíma öðru hvoru. Þetta verður svo gaman þegar þetta er búið. Er mest hrædd um að við þurfum annan sleða og a.m.k. tvo hunda í viðbót.
Já já ekki brjálast neitt hérna. Staðreyndin er sú að tveir hundar draga ekki tvo fullorðna á einum sleða. Og við viljum gjarnan vera saman að þeysast um fjöllin, svona ef kannski myndi SNJÓA hérna almennilega einhvern tímann. Ætli við flytjum ekki bara norður eða better yet, flytjum bara til Norður Ítalíu eða Austurríkis í Alpana. Já það er hugmynd, ætla að hugsa það aðeins...
Plan B er þá væntanlega að eiga þennan eina sleða og skiptast á að sitja og standa og fá lánaða tvo til fjóra hunda öðru hvoru til að draga þyngslin áfram. Hmm lýst eitthvað svo betur á Plan A...
Fórum í dag hjónin í smá labb í Bláfjöllum með hundana. Jökull gekk með okkur ásamt Zizou og Keano. Þarna var allt hvítt yfir, svona slyddusnjór yfir öllu. Nóg samt til að allt var hvítt og bjart. Veðrið var yndislegt, svo ömurlegt og svo bara fínt aftur. Allar tegundir, sól, snjór, rigning, slydda, vindur, minni vindur... o.s.frv. Hundarnir voru alveg að hafa það fínt þarna, þjótandi um móana yfir stokka og steina og gjótur og mosa og lyng o.s.frv. Zizou gerði sér lítið fyrir og fann sér fínt bein til að naga - sennilega rif úr löngu dauðri rollu eða eitthvað. Ronja fann svo gamalt hreiður grafið í lyng og mosa. Zizou náði í lítið egg úr þessu. Snilldar nebbar á þessum hundum, það fer lítið framhjá þeim.
Krakkarnir ákváðu að vera heima - KBB að leika við Unu vinkonu sína og KEB ákvað að læra fyrir prófin í næstu viku. Hann nefnilega ætlar (og er núna) í bíó með vinum sínum úr fimleikunum. Í gær skelltu þessir krakkar sér í sund um þrjú leytið og það þurfti að sækja drenginn í bæinn því strætó var hættur að ganga hingað í Mos þegar þeir Óskar rönkuðu við sér. Síðasta ferð hingað úr RVK er kl. 22:16 frá Grensás. Þeir voru semsagt sóttir en ég sagði syni mínum að það þýddi lítið að leika þennan leik aftur. Næst yrðu þeir þá bara að eyða pening í leigubíl og treysti á að þeir tími því ekki :o) Erfitt að vera svona sveitadrengir!
Dugði reyndar skammt því nú eru þeir í bíó - fóru kl. 20 og strætó hættur að ganga þegar myndin er búin :o/ Svo ég sæki þá á eftir því foreldrar Óskars sóttu þá í gær - það verður að skipta þessu eitthvað á milli :o)
Later

Ummæli