Fara í aðalinnihald

Að vera þjófur eða vera ekki þjófur?

Í jólaboði hjá nöfnu minni og ömmu fræddi móðurbróðir minn okkur á því að föðuramma hans hefði alltaf sagt að við værum afkomendur þursa og sauðfjárþjófa. Þetta þótti okkur verulega fyndið og hann bætti við að hún hafi nú þótt ættfróð kona svo þetta hljóti að vera satt :o)

Svo ég get þá ekki núna með góðri samvisku, líkt og flestallir aðrir Íslendingar reyna, að segjast vera komin af höfðingjum og víkingum og því slekti öllu saman. Ég er bara ótýnd almúgakerling og með þjófagen í æðum mínum. Kannski þess vegna sem mér er svo illa við alla skatta og skyldur þrátt fyrir að standa skil á því öllu saman samviskusamlega.

Þrátt fyrir að mér finnist svona nett kúl að vera afkomandi þursa og sauðfjárþjófa þá er með verulega misboðið að breskur lávarður leyfir sér að halda því fram að mér sé alveg sama þó að ég og þjóð mín pokketum 3,6 milljörðum og finnist það í góðu lagi. Ég kannast nefnilega ekki við að hafa fulla vasa fjár eftir þessa víkingaför okkar allra. Og þegar hann vælir eins og stunginn grís eftir að hafa tapað þorskastríðinu og talar um ósanngirni og þrjósku þá ætti þessi ágæti lávarður að líta sér nær. Hann nefnilega er afkomandi kúgara og valdníðsluseggja og einnig þjófa. Bretar eru nefnilega ekkert skárri sjálfir, í krafti nýlendustefnu sinnar hafa þeir arðrænt þjóðir og stolið menningarverðmætum þeirra, þannig að nasistar hreinlega blikna í samanburði, og já þeir NEITA að skila þessum verðmætum aftur.

Þeir sem hafa heimsótt British Museum þurfa ekki annarra vitna við - það er sennilega stærsta viðurkennda þjófagreni í víðri veröld. Ég hef heimsótt það safn alla vega 2x og alltaf er egypski salurinn eftirminnilegastur. Viss um að Egyptar hefðu ekkert á móti því að endurheimta þessar minjar sem réttilega tilheyra þeim. En veit líka að Bretar þrjóskast við og neita staðfastlega með allskonar misgáfulegum rökum.

Þannig að minn kæri lávarður - go fly a kite!

Þursinn og sauðFJÁRþjófurinn ;o)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
sammála. og það eru hetjurnar sem viðurkenna eigin mistök ! Á.U.
Nafnlaus sagði…
Lóa! hvenig væri að fara að birta eitthvað af þessum snilldar pistlum víðar - þó ekki væri nema í bæjarblaðið - undir dulnefni þess vegna eða bara enn betra í fjölmiðlum!!!!! ættir að fá svona pláss á baksíðu fréttablaðsins þar sem einu sinni voru alltaf vangaveltur almúgans! ég styð þig - líka ef þú ferð í framboð ;0)
Lóa Björk sagði…
ha ha ha - það væri fyndið ef bullið úr mér færi að birtast út um allt. Eins og sannur kvenmaður þá er ég ekki viss um að ég hefði kjarkinn í það - eins asnalegt og það er því netið er víst ekki alveg lokað LoL

Og framboð er nú ekki á dagskrá því eins og fleiri þá er ég betri í að gagnrýna en að koma með góðar lausnir, því miður - þó tengdamóðir mín bíði spennt eftir að ég setjist í stól borgarstjóra, því þar hafa setið tvær konur sem báðar eru sagnfræðingar. Þess vegna hef ég ekki lokið prófi ennþá - ég er svo hrædd við að enda sem borgarstjóri í RVK og hafa ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera þar. Já eða þannig, jafngóð afsökun og hver önnur :o/

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...