Litla daman er sátt og sæl með afmælisdaginn sinn, þá er takmarkinu náð. Nú bíðum við spennt eftir nýjustu viðbótinni í fjölskylduna.
BH á von á lítilli bróðurdóttur í heiminn vonandi á morgun. Þrátt fyrir að hann hafi reynt hvað hann gat til að koma krakkanum út (jájá - hann reyndi það) með því að bregða mömmunni og ýta létt á magann við hvert tækifæri og tala krakkann út með góðu, m.a.s. í dag sendi hann SMS sem hljóðaði svona "BÚÚH". Ekkert hefur virkað en nú sér fyrir endan á biðinni.
Óskum þess að allt gangi fljótt og vel fyrir sig og að lítil spriklandi stelpurófa birtist heilbrigð og flott í heiminn á Landsspítalanum þann 3. febrúar - til vara segjum við 4. febrúar :o)
Later

Ummæli