Fór með soninn til læknis í morgun - krílin í vetrarfríi og því upplagt að nota morgunin í svona verkefni. Hann var á æfingu á miðvikudaginn, þau eru að æfa fyrir mót sem verður á sunnudaginn.
Þessi vika var ansi þétt hjá honum því hann var að ljúka við hópverkefni ásamt nokkrum bekkjarfélögum, tónleikar á miðvikudaginn og æfing í fimleikum sem hann vildi alls ekki missa af. Miðvikudagurinn var því dáldið brjál. Skóli, heim að vinna með strákunum, 17:15 - æfing með píanistanum, tónleikar kl. 18, og við búin að fá í gegn að hann fengi að spila fyrstur til að geta hlaupið út strax og beint á æfingu sem byrjaði 16:30, en átti að ljúka kl. 19:00. Þannig að hann gat þá mætt í smá stund. Ég sat og fylgdist með þeim og sá drenginn skoppa af trampólíninu svona þrjá metra eða meira upp í loftið, kuðla sig saman í bolta, snúa sér í tvo hringi, opna kroppinn og reyna að lenda. Lendingin var ekki alveg komin og hann var að vinna í henni.
Lenti eitthvað illa úr einu stökkinu með álag á annað hnéð og því enduðum við hjá lækni í morgun. Hann var samt orðinn mun betri og þvi sennilegt að mamman hafi haft rétt fyrir sér og að hann hafi bólgnað eitthvað og það hjaðnar vonandi fljótt. Læknirinn skoðaði hann vel og vandlega og taldi að það væri vökvi í liðnum hjá liðbandinu. Ætti að lagast fljótt en gæti tekið smá tíma. Sagði drengnum að hlífa sér næstu vikuna alla vega.
Smá vesen - drengurinn er að fara að keppa á sunnudaginn. Okei - hvað er ein keppni? Jú málið er að sennilega verður allur hópurinn að ganga úr keppni ef það vantar einn því þetta eru hópfimleikar og það verður að vera lágmarksfjöldi af drengjum og stúlkum í liðinu! Fyrir utan að KEB er langbestur í hópnum og nær því vonandi flestum stigum í hús fyrir þau. Svo það er smá drama í gangi - hann ætlar ekki að keppa og eyðileggja á sér hnéð - en langar ekki að sitja hjá heldur. Fer á æfingu á eftir og ræðir við þjálfarann - sjáum hvað gerist.
Þegar við mættum inn til læknisins sagðist ég ekki viss um að hann hefði komið til þeirra áður. Okkur heimilislæknir er nefnilega í Árbænum, hef ekki nennt með krakkana þangað því það er svo þægilega stutt á heilsugæsluna hjá okkur bara og gott að fá tíma. Hef farið þarna með KBB nokkrum sinnum. Jú hann vildi meina að KEB hefði komið einu sinni - árið 2002 - í bólusetningu. Ég man eftir bólusetningunni - hún var framkvæmd í skólanum. Svo KEB hefur ekki farið til heimilislæknis síðan ég man ekki hvenær - þokkalega hraustur gaur. Verð að viðurkenna að ég hef farið með börnin mín meira til barnalæknis ef það hefur amað eitthvað að þeim svo þetta er nú ekki alveg marktækt. KEB fór til Gests síðast þegar hann var 11 eða 12 ára. En hraustur er hann blessaður og stelpan líka. (sjö, níu, þrettán).
Later

Ummæli