Sjaldan sem ég kippi mér upp við að lesa um stjörnurnar sem eru með allt í klósettinu vegna eigin bjánaskaps. En í þetta sinn varð ég pínu leið. Málið er að ein flottasta söngkona 9. áratugarins er gjörsamlega búin á því. Hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu síðustu árin. Nema þá helst vegna fíknefnaskandals af og til.
Mér finnst leiðinlegt að sjá að svona hæfileikarík og falleg kona skuli tapa öllu niður. Horfði á þetta myndband og vorkenndi henni bara. Og til að toppa ömurlegheitin þá hefur hún látið blása í vörina á sér eins og flestar stjörnur virðast gera þessa dagana. OJJJ það er svo glatað að líta út eins og Andrés önd - málið er að allar þessar konur sem láta fylla í varirnar á sér eru töluvert betur útlítandi áður en það er gert.
Whitney Houston á kannski eftir að gera góða hluti í framtíðinni en hún þarf alvarlega að taka sig saman í andlitinu áður en af því verður. Nú er ég engin sérstakur aðdáandi hennar. En þótti hún samt syngja nokkur góð lög á sínum tíma og þetta lag á myndbandinu var töluvert betur sungið á sínum tíma. Þá var hægt að fá gæsahúð þegar hún óð í háu tónana. Núna fær maður bara aulahroll - brrr.
Later

Ummæli