Fara í aðalinnihald

Þjóðaríþrótt...

Flottir gaurarnir í íslenska handboltalandsliðinu - bronsið heim og allir glaðir. Voru reyndar aðeins að taka mig á taugum þarna síðustu mínúturnar í gær gegn Pólverjunum. En þetta hafðist á endanum. Til lukku með það drengir :o)

Ég er að geðbilast á eigin leti og framtaksleysi - er núna að gramsa í því að borga laun og reyna að fara eftir þessum endemis skattabreytingu - af hverju að gera einfalt þegar við getum haft þetta svona ljómandi flókið og skemmtilegt. Verð reyndar að viðurkenna að þegar ég loksins settist yfir þetta þá er þetta nú einfaldara en mér fannst í fyrstu. Spurning hvort ég sé ekki að gera þetta almennilega - sýnist það. Ekkert jafnleiðinlegt og að reikna vitlaust út eitthvað sem viðkemur skattinum, maður fær það fimmfalt í hausinn og verkurinn er í mánuð eða tvo eftir svoleiðis árekstur.

Annars sagði ágætur lagaprófessor að það væri þjóðaríþrótt Íslendinga að svíkja undan skatti. Væri sennilega komið frá forfeðrum okkar sem flúðu hingað frá gráðugum kóngum og svona :o)Það vill svo til að við erum afskaplega slöpp í þessari íþrótt - erum meira fyrir að fara út í gönguferðir og vonandi sleðaferðir fljótlega og badminton og fótbolta. Verst að þessar íþróttir gefa ekki eins vel af sér :o/ Then again - við eigum þá ekki í hættu að vera stungið í steininn heldur :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...