bara svona af því ég var að tuða um bad hairday´s í dag þá ákvað ég að pósta þessum gaur hérna inn. Þetta er sú persóna sem heittelskaður eiginmaður minn hefur hvað oftast líkt mér við. Þetta á helst við á morgnana þegar ég er "hvað hressust" og kann svo vel að taka svona gríni (staðreyndum) ;o) Munið ekki eftir honum úr Einu sinni var... þáttunum?
En ætla að bæta því við að á fimmtudaginn þegar sonur minn kom heim spurði hann "varstu í klippingu?" Jú það stemmir! "hmm flott" - er hægt að fá meira hrós??? Við erum að tala um unglinginn sko og það DRENGINN. Litla drottningin var sátt líka svo ég er bara í góðum málum!
Le Nabot
Ummæli