KEB tók þátt í skólahreysti í dag fyrir Lágafellsskóla. Hann hljóp hraðabrautina ásamt Thelmu í 10. bekk. Thelma náði víst góðu forskoti sem KEB rétt náði að halda. Þau stóðu sig svo vel að þau voru með besta tímann í sínum riðli. Lágafellsskóli lenti í öðru sæti í heildina í riðlinum. Nú vonast þau til að hafa nógu hátt skor til að komast áfram í undanúrslitin. Krossa fingur :o)
Fórum með Ronju til dýralæknis á mánudaginn. Kolla husky hjúkka nr. eitt á Íslandi kíkti á drottninguna okkar bara á biðstofunni og sagði okkur að hafa ekki áhyggjur. Sárið væri byrjað að gróa og leit ekki illa út. Eigum bara að halda því hreinu og bera á það AD krem áfram. Gefa þessu viku. Jájá reynið að útskýra það fyrir Ronju. Hún er að verða hálf biluð á að hanga svona inni. Þau eru vön að vera úti alla daga allan daginn. Eru búin að vera meira og minna inni síðan fyrir síðustu helgi. Og ég lítið heima þessa dagana svo þau eru ekki alveg að skilja þetta. Verð að hafa þau inni í búri á daginn þegar enginn er heima - tek enga sénsa með þessa tvo fjörkálfa eina heima. Úlfur er svo góður við hana - sleikir loppuna hennar vel og mikið. Og rétta loppu sko - hann veit alveg hvað hann er að gera. Þetta er reyndar stranglega bannað og við reynum að hafa sokkinn á henni eins mikið og við getum. Hún er ekkert mikið að sleikja sárið - bara hann!
Í gær var ansi langur dagur hjá mér. Byrja á að koma börnum í skólann - fer svo út með hundana. Tók Úlf í góðan göngutúr en BH sá um að hreyfa Ronju greyið lítinn hring. Heim í sturtu og að borða. Mundi eftir að kippa litlu myndavélinni með mér í bæinn og bað Baldvin í Beco að kíkja á hana fyrir mig. Vil helst ekki þurfa að kaupa mér nýja vél. SBK borgaði lifur og annan handlegg fyrir sína nýju myndavél og ég ætla að spara mína lifur pínu lengur. Baldvin alltaf glaður að sjá mig og reddaði þessu á meðan ég beið. Við erum góðir vinir síðan þarna um árið þegar ég vann í Hans Petersen. Það var bara linsulokið - eins og ég vonaði - sem þurfti að laga. Ég þurfti ekki einu sinni að borga því þetta tók enga stund. Keypti tösku hjá þeim til að koma í veg fyrir svona eyðileggingu á vélinni aftur.
Þá var komið að því að bruna á Þjóðskjalasafnið, uppáhaldsstaðurinn minn þessa dagana. Verð að vera jákvæð því annars mygla ég og gulna upp eins og pappírinn sem ég er að þykjast lesa. Er ekki alveg ein í heiminum þarna - Árni heldur mér félagsskap og svo kona sem ég man ekki alveg hvað heitir. Erum að dunda í eins skjölum en í misjöfnum tilgangi samt. Svo er hrúga af fólki þarna dagsdaglega. Ég velti því alvarlega fyrir mér hvað þetta lið er allt að gera þarna. Meira og minna gamlir karlar sem eru svo fyndnir. Svona eins og unglingsstelpurnar myndu segja (KEB fræddi mig á þessu áðan) aawww krúttin! Einn talar alltaf svo hátt í símann - fer ekkert afsíðis neitt. Nei við fáum bara öll að njóta. Komst að því í gær er hann var að fara að hann er á hækjum og ekki fljótur í förum svo honum er fyrirgefið því hann talar ekkert lengi :o) Svo er annar sem talar fullt og alls konar búkhljóð einhvern veginn. Held hann heyri þetta ekki sjálfur. Heldur sennilega að hann sé að hugsa þetta bara! Svo eru þarna líka konur. Það kom ein í gær - hún toppaði þetta allt saman. Setti alls konar drasl frá sér á næsta borð við mig og svona kom sér fyrir. Ég tók nú ekkert eftir henni - ekki fyrr en hún hafði tekið stólinn hans Árna (sem situr á móti mér). Hann hafði brugðið sér í mat og mitt verkefni var að passa uppá dótið hans - tölvuna og svona. Ég átti ekki orð - hún spurði ekki einu sinni, bara nappaði stólnum og var kominn með hann hinum megin þegar ég áttaði mig. Hún gat alveg séð að þessi stóll var í notkun - fullt af drasli á borðinu. Það fór ekkert á milli mála.
Ég er nú ekki mikið fyrir að valda uppnámi í svona virðulegum sal þar sem gamla fólkinu gæti brugðið. Svo var það besta - hún settist ekkert niður. Hún fór innar í salinn og var að gramsa í bókum og græjunum þarna, æ man ekki hvað þetta heitir - slidevélarnar þarna. Árni kom svo dálítið seinna og eina sem ég gat sagt var "drífðu þig - taktu aftur stólinn" Hjúkk að hann gat tekið hann aftur - þeir voru meira og minna allir í notkun í salnum. Þetta er sko heitasti staðurinn í dag. Fékk ekki einu sinni stæði þarna í dag, þurfti að leggja hjá Snæland Videó!
Anyways - kl. 17 átti ég að vera komin í TBR. Mætt á réttum tíma og allt. Fékk athugasemd, hvort ég ætti ekki að vera seinna á ferðinni, það væri venjan. Já það er tekið eftir manni þarna á næstu völlum. Ég er venjulega sein! Við vorum bara þrjú í gær. Pabbi var tekinn í bakaríið og ég var svo heppin að áður en kom að mér að spila ein þá barst liðsauki. Þeir voru fimm mætir á einum velli og bættu því við manni til okkar. En í stað þess að við fengjum bara einn mann þá skiptu þeir útaf hjá sér og sá kom inná hjá okkur. Þannig að pabbi fékk fjóra spilara í sitt lið. Við SBK áttum í mismiklu basli með þá. Þeir voru missterkir. Einn hins vegar fór alveg með okkur. Hann var svo snöggur og sló svo fast niður að við vorum í mesta basli. Þegar við vorum að átta okkur á honum þá var honum skipt útaf. Á okkar velli erum við nefnilega bara vön einni sem slær boltana svona fast niður og hún er í mínu liði.
Beint heim eftir badminton. Það var frekar niðurdrepandi - allt í rugli. Krakkarnir ganga ekki frá eftir sig og ég þurfti því að byrja á því að ganga frá og undirbúa matinn, gefa hundum að borða o.s.frv. KBB ryksugaði fyrir mig þegar hún kom úr skátunum. Henni var falið það verkefni framvegis þegar hún kemur heim á daginn. Hér þarf að ryksuga á hverjum degi núna (helst 2x) því báðir hundarnir eru að fella feldinn. Og dæmigert að Ronja má ekki vera úti eins og venjulega akkúrat núna!
Svo sturta aftur og fundur kl. 20 - heim kl. 22:30 og beint í rúmið nánast - búin á því. Ó já og áður en ég fór að sofa bað drengurinn mig um að bera út í morgun því hann vildi sofa til að vera sem best stemmdur fyrir skólahreystina. Lét það eftir honum en benti á að hann hefði getað farið að sofa kl. 22 og borið út sjálfur - döh hann var ekki að skilja þessi FÁRÁNLEGU rök.
Þannig að dagurinn í dag byrjaði kl. sex í morgun - útburður, krakkar í skólann, út með Úlf í göngu (kemba úr honum eina púddlu á leiðinni) og svo beint á Þjóðskjalasafnið. Og svo heim að elda mat - mmmm það er svo góð ýsa í frystinum hjá mér. Steikti ýsu á pönnu eftir að hafa velt henni upp úr eggjum og hveiti. Um daginn var ýsa í piparostasósu. Fólkið hérna mjálmaði úr hamingju þá. Óli Björn frændi kom með 9 kg af ýsu handa mér um daginn. Ekki leiðinleg sending það :o) Nú er bara að vera dugleg að finna góðar uppskriftir :o) Er vön að kaupa fisk 1x - 2x í viku. Mér hættir til að kaupa svona tilbúið í ofninn dæmi - nú verð ég að roðfletta og passa bein. Það er lítið mál - eitt af því fáa sem ég man úr heimilisfræðinni í gamla daga.
Svona verða vikurnar hjá mér - tilbreytingarlítið. En ég vonandi klára þessa ritgerð þá einn daginn. Það er hætt við að það taki smá tíma - ég get lesið smávegis en er í mesta basli með mest af þessu. Bíð spennt eftir að það opnist svona rauðahaf og ég geti lesið þetta hrafnaspark! Þangað til verð ég bara að bíta í það súra að skilja ekki helmingin af því sem ég er með í höndunum (90% er nær lagi).
Later

Ummæli