Ætla með tíkina til dýralæknis á eftir. Okkur finnst skurðurinn ekkert vera að gróa. Hann er svo sem ekki að versna heldur samt. Hún er orðin heldur fúl að hanga svona inni með auman fót. Reyndi að draga mig að gerðinu áðan og beið spök eftir að ég opnaði. En var dregin inn aftur litla músin. Með sokkinn á fæti og plastpoka yfir. Úlfur hérna að reyna að fá hana til að leika við sig líka. Vona að dýralæknirinn geti flýtt eitthvað fyrir batanum og vona líka að það þurfi ekki að sauma. Þetta er ömurlegur staður fyrir svona skurð.
Bíllinn eitthvað lasinn líka. Stýrið orðið stíft og furðulegt. Lyktar eins og að rándýr viðgerð sé framundan. Vona ekki samt - vona að þetta sé eitthvað olíumál bara.
Sjáum til hvernig dagurinn fer. Vona að bæði tíkin og bíllinn læknist fljótt og ódýrt ;o)
Later

Ummæli