Fara í aðalinnihald

búgabúga...

Helstu tíðindi þessarar viku eru þau að hundkvikindið hans BH (bara minn þegar hann hegðar sér) tók það að sér að ná sér rúgbrauðið sem átti að vera með fiskinum í fyrradag. Ég var búin að hafa allt til, vildi að fiskurinn yrði pínu lengur í ofninum og settist því hérna inn í stofu til að kíkja aðeins á sjónvarpið. Þegar ég kom fram aftur var litli óþekktarormurinn að sporðrenna síðustu mylsnunum af rúgbrauðsneiðunum sem voru næst borðendanum. Þokkalega sem hann fékk að heyra það og var hent inn í búr. Þar sem hann sat greyið á meðan við borðuðum. Ég hefði mátt vita að svona gæti gerst því daginn áður hafði hann laumast með loppurnar upp á borðið við uppþvottavélina til að laumast í kjúklinginn sem þar var. Við vorum þrjú við eldhúsborðið að snæða kvöldmat þegar KEB gargar allt í einu "NEI ÚLFUR". Svo ég mátti rjúka á fætur til að taka í orminn og henda honum inn í búr... þar sem hann sat á meðan við borðuðum. Mikið sem hann lærði af þessu :o/

KEB er eins og þeytispjald á milli staða þessa vikuna. Reyndar hefur hann sett allt á HOLD því félaginn er að taka þátt í Latabæjar-sýningunni á laugardaginn. Búinn að vera á æfingum alla vikuna í höfuðstöðvum Latabæjar. Hann var ekki að nenna þessu áður en hann mætti á fyrstu æfinguna á mándaginn. Svo er þetta bara svo gaman að þeir eru skælbrosandi allan hringinn eftir æfingar. Það er ekki annað hægt með þetta fólk í kringum sig sem stendur að þessu. Maggi Scheving er að vinna með þeim drengjunum og leiðbeina þeim. Hver smitast ekki af honum? Hann er svo almennilegur við alla krakkana og skemmtilegur. Svo er Gunnar Helgason að leikstýra þarna, ekki alveg leiðindagaurinn - alltaf jákvæður. Svo eru þarna leikarar og söngvarar sem verða með í sýningunni, allir frekar léttir og hressir og auðvitað Solla stirða hin nýfundna :o)

Ég hef aðeins fylgst með þeim á æfingum - kíkt inn þegar ég er að ná í þá KEB og Óskar. Lítur út fyrir að vera rosa gaman - skemmtilegt að fá að taka þátt. En verð að viðurkenna að þegar ég hef heyrt þessar auglýsingar um sýninguna í útvarpinu undanfarið þá hugsaði ég alltaf - hjúkk ég á ekki barn á þessum aldri, guði sé lof. Fékk því pínu svona "gott á þig" tilfinningu þegar KEB sagði svona hinsegin "og já svo á ég að taka þátt í Latabæjarsýningunni" LoL

Verð að láta fylgja smá eldhúsborðsumræður. Ég sagði þeim feðginum að KEB væri bara farinn að fíla Latabæ í tætlur aftur - dilla sér brosandi við BingBang og það allt. Hann glotti bara og sagði að þeir strákarnir myndu allir fá þrönga bláa boli og vera í hvítum fimleikabuxum. BH spurði þá hvort hann þyrfti ekki að safna pung? KBB frussaði matnum út úr sér því hún hló svo mikið en KEB sagði bara jújú það er víst. KBB hló ennþá meira þegar hún uppgötvaði að stóri bróðir hennar væri að fara að dansa opinberlega við BingBang lagið í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Hún ætlaði aldrei að hætta að hlæja. Svo spurði hún "getum við farið að sjá sýninguna?" Ég veit ekki alveg hvort hún vilji bara alveg eins sjá herlegheitin eða hvort hún vilji bara getað hlegið sig máttlausa að bróður sínum á sviðinu sprikla um að gera hreyfingar íþróttaálfsins. Kemst ekki að því vegna þess að við ætlum ekki að borga okkur þarna inn :o) Vona að ég fái myndbandsupptöku af öllu saman og grobbað mig þannig að flotta drengnum sem ég á.

Ójá gleymdi einu - þegar ég minntist eitthvað á við BH, þarna við eldhúsborðið, að við ættum nú flotta krakka þá vogaði hann sér að segja "já ef einhver er toppundaneldistík..." Og hann er enn á lífi - skil það ekki! Sennilega gleymdi ég bara að ganga frá honum því ég hló svo mikið. Ef hann er ekki kominn í hundana þá veit ég ekki hvað!

Á þriðjudaginn fór ég með KEB til Þórðar (annar af upphafsmönnum Stóru upplestrarkeppninnar) til að þjálfa hann í að lesa passíusálmana. Hann bað drenginn um að lesa eitt erindi af 9. sálmi sem hann og gerði. Þórður var ánægður með hann, sagði að áherslurnar væru á réttum stað. Svo las hann fyrsta erindi úr 11. sálmi og aftur var hann ánægður með piltinn og sagði "ég skil vel af hverju þú vannst keppnina". Yup - litla montin sem ég er af stráknum mínum :o)

Okkur var stefnt í Hallgrímskirkju til að æfa þar kl. 14 á miðvikudaginn. KEB kom með strætó til mín á Laugaveginn og svo brunuðum við saman í kirkjuna. EEEnn komum viku of snemma - Þórður baðst afsökunar á því að hafa ruglast svona á dögum. En við KEB ákváðum bara að skella okkur saman á Vegamót og fengum okkur að borða saman.

Í dag ætlaði ég að drífa mig bara á Þjóðskjalasafnið og vera þar í dag. En fyrst þarf að viðra hunda. Beið eftir BH því hann ætlaði með mér, komum ekki tilbaka fyrr en kl. 11. Þá þarf að borða, hafa sig til og taka úr þvottavél. Svo brunaði ég í Rauðhólana til að taka myndir fyrir SBK. Er það var búið var klukkan orðin eitt svo ég ákvað að hlífa BH við að skutla strákunum í Hafnarfjörðinn á æfingu og keyrði þá sjálf. Kom því ekki á safnið fyrr en um kl. 14 og var aftur orðin svöng. En gat setið þar til kl. 17. Þaðan dreif ég mig í eina verslun og svo í Ármann að ná í hvítar buxur á strákana - sem þær reyndar áttu ekki til á stóru strákana svo þjálfarinn verður að redda því öðruvísi. Í Hafnarfjörðinn, horfði á lokaatriðið og keyrði þaðan heim með drengina. Greip KBB, sem var tilbúin, keyrði hana í Álfheimana til mömmu. Þær ömmgurnar ætluðu saman í Bingó. Spurning hvort þær vinni eitthvað :o) Brunaði heim aftur, reddaði blautri skyrtunni hans KEB svo hann gæti farið á árshátíðina í skólanum. Útbjó mat fyrir okkur hjónin sem vorum orðin ein í kotinu - meiri þvottur og taka af snúrum.

Og nú langar mig bara að fara að sofa...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...