Fara í aðalinnihald

Fyndið?

BH: eru þeir að grínast
LBK: hvað ertu gamall?
BH: 36 ára
LBK: þá ættir þú að vita að ríkissjónvarpið grínast ekki með val á sjónvarpsefni fyrir landsmenn. Það var okkur báðum ljóst er við horfðum á danska heimildamynd um danskan mann fá asíska brúði sína samþykkta sem danskan ríkisborgara þarna um árið á Barðaströndinni!

Ok - íslensk sjónvarpsmynd í sýningu núna, veit ekki hvað hún heitir. Er um tvo samkynhneigða glímumenn sem halda sambandi sínu leyndu. Enn hef ég ekki séð neinn brosa, allir mjög alvarlegir með skeifu bókstaflega. Allt mjög íslenskt við þessa kvikmyndagerð. Allir að drepast úr þunglyndi og leiðindum - ein kona dáin og allt í volli!

Nema hjá mér - alltaf þegar ég lít upp og á sjónvarpið er nærmynd af andliti og fýlan lekur af því - mér finnst þetta mjög fyndið. Svo er verið að glíma og það er eins og þeir séu að dansa karlarnir saman. Þetta er svo ömurlegt allt saman að það er ekki hægt annað en að hlæja - vona að fleiri sjá spaugilegu hliðina á þessari mynd því annars er hætt við sjálfsmorðhrinu eftir þáttinn, þ.e. ef fólk uppgötvar að þetta sé hinn íslenski veruleiki sem bíði þeirra. Grámygla og alvarlegt fólk með skeifu.

Við þurfum sennilega ekki að óttast sjálfsmorðshrinuna samt vegna þessa því það er sennilega enginn að horfa - Skjár einn bjargar þessu með einhverjum amerískum sitcom sem maður er búinn að gleyma 3 sekúndum eftir að þættinum lýkur. En maður gleymir ekki þessari íslensku mynd fyrr en í fyrsta lagi á morgun.

Heyrðu ég held þeir séu að vanga núna gaurarnir - eiga að vera að glíma en eru að sofna í fanginu á hvor öðrum - óborganlegt. Og núna búið - ha, ehe um hvað var þetta eiginlega????

Clueless

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...