Ég hef aldrei upplifað það áður að skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Í fyrsta sinn á ævinni mundi ég ekki segja stolt frá því í útlöndum hvaðan ég sé! Þetta er vond tilfinning. Sérstaklega því ég tel mig ekki hafa gert nokkuð til að þurfa að skammast mín!
Ég öfunda ekki Íslendinga sem búa erlendis, eru í námi erlendis eða á ferðalagi. Var að lesa frétt áðan um konur sem voru reknar úr búð í Danmörku fyrir það eitt að vera íslenskar. Segir reyndar meira um kaupmanninn en blessaðar konurnar. Gamlir karlar í Hull á Bretlandi líka ægilega kátir yfir óförum íslendinga - vona að þeir geispi golunni þá sáttir við réttlætið sem þeir telja sig hafa fengið núna.
Magnað hvað fréttaflutningur er yfirgengilegur og hefur mikil áhrif. Ég er nú ekkert að komast að því núna neitt, þetta hefur verið svona lengi. Fréttamenn draga bara fram það sem þeim hentar - sannleikur kemur því ekkert við. Um daginn í öllum þessum látum með Gordon Brown og félaga þá datt mér í hug kvikmyndin Wag the dog. Sú mynd hefur setið í mér öll þessi ár, veit ekki af hverju - þetta var bara svo svakalega vitlaust. Datt aldrei í hug að Ísland gæti verið þetta smáríki sem risaveldi myndi ákveða að trampa á til að fela sín eigin klúðurmál.
Í þessu fjármálafárviðri öllu saman hefur sonur minn komist að því hversu góðir stjórnmálamenn eru að blása sápukúlur - það freyðir kjaftæðið út um munninn á þeim. Þetta uppgötvaði hann alveg sjálfur án aðstoðar okkar foreldra sinna. Ég sá ekki þetta viðtal sem hann vitnar stöðugt í. Það var verið að tala við einhvern - veit ekki hvern - og fréttamaðurinn spyr hvað á að gera í sambandi við ??? - jú þeir voru með hugmyndir sem höfðu verið ræddar. Hvaða hugmyndir vildi spyrjandinn vita? Svarið var að þetta væru mjög góðar hugmyndir sem menn höfðu rætt, þeir hittust á fundum kl. 18 og ræddu þessar hugmyndir... Krakkinn varð alveg forviða á þessu svari - hvað kom það málinu við að fundirnir væru kl. 18?? Hann hélt að það væri augljóst að fólk myndi vilja vita HVAÐA hugmyndir væri verið að ræða.
Fyrir ykkur í útlöndunum þá get ég frætt ykkur á því að hillurnar í þeim verslunum þar sem ég kaupi inn eru ekki tómar - ekki enn alla vega. Við vöknum enn á morgnana og förum til vinnu og í skóla. Mikið er rætt um andlega áfallahjálp í alls konar búningum út um allan bæ, sé ekki fyrir mér að nýta mér þau tilboð - maður veit þó aldrei. Það væri þá kannski helst yfir fréttaflutningi misviturra fréttamanna sem sjá til þess að þjóðernisstoltið sé komið ofan í skurð og verið sé að moka yfir.
Verð að viðurkenna að næstu mánaðarmót valda smá kvíða, sjáum hvernig okkur reiðir af eftir þau.
Stay coool people!

Ummæli