Fór á forvarnarfund í Lágafellsskóla í gær. Magnús frá Marita samtökunum var kominn aftur til að fræða foreldra og börn um skaðsemi fíkniefna. Hann fjallaði nú um ýmislegt fleira sem þarf að hafa í huga, t.d. tölvunotkun barna, auglýsingar sem beint er að börnum og fleira. Eins og í fyrra var þetta fróðlegt og þarft að láta lesa yfir sér hversu alvarlegt það er þegar einhver byrjar að fikta við þessi efni. Gaurinn er óvirkur fíkill, búinn að vera óvirkur í rúmlega 11 ár en segist enn í dag taka einn dag í einu. Það liggur við að mann langaði að gráta þegar horft var á heimildamyndina sem hann sýndi okkur. Það er svo sorglegt að horfa á foreldra og börn lýsa baráttu sinni við fíkniefni og fylgifiska þeirra eins og vændi, geðtruflanir, afbrot og fleira svona skemmtilegt. Það var þokkalega vel mætt á fyrirlesturinn - betur en í fyrra alla vega. Maður er svo grænn að maður heldur að þetta komi nú ekki fyrir manns eigið barn, en það er eins gott að vera vakandi og tala við krílin sín áður en þau halda út í þennan partýheim. Þau eru nú þegar byrjuð að nota netið grimmt og hafa örugglega séð ýmislegt vafasamt sem ég veit ekkert um. Youtube t.d. er ekki bara fyndin myndbönd og sakleysið uppmálað. Það er hægt að finna alls konar óþvera þar eins og annars staðar.
Eitt af því sem mér fannst merkilegast gerðist í lok fundarins. Rétt aðeins minnst á kreppuna og mikilvægi þess að halda börnum frá henni eins og hægt er. Þ.e. ekki yfirfæra okkar áhyggjur á börnin okkar, leyfa þeim að vera áhyggjulaus þó þau séu kannski meðvituð samt. Það sló mig dálítið að margir hafa haft það á orði að sleppa bara jólagjöfum í ár. Og einhver á að hafa sagt þegar fyrstu fréttir af ástandinu dundu á þjóðinni "Já ágætt bara nú get ég hætt að gefa börnunum mínum allar þessar gjafir".
Ég verð að viðurkenna að ég gef börnunum mínum ekki svo mikið af tækifærisgjöfum að það reddi bara fjárhagnum í kreppunni að sleppa þeim. Svo finnst mér, og fleirum sem voru þarna í gær, ekki rétt að klippa niður allt til barna, jólagjafir o.þ.h. Væri ekki réttara að fullorðið fólk klippi líka niður hjá sér frekar, t.d. einn eða tvo bjóra, rauðvínsflöskuna með matnum - hætti að reykja o.s.frv.
Í gær (áður en við fórum á fyrirlesturinn) sagði ég við BH að ég væri tilbúin til að skera niður hjá okkur heilmikið af neyslu (er í raun aðeins byrjuð), en ég yrði afskaplega svekkt ef ég þyrfti að kippa krökkunum mínum úr íþróttum og tónlistarnáminu. Mér finnst þetta tvennt skipta mjög miklu máli og á eftir að reyna að halda þeim í því eins lengi og ég get.
Fólk ætti að hafa þetta á bakvið eyrað þegar kreppir að - börnin okkar eiga að líða sem minnst fyrir þessa vitleysu. Ef þau geta ekki stundað íþróttir lengur vegna þess að heimilið ber það ekki, þá verða foreldrarnir bara að fara út í snjókast með þeim, í göngutúr, í sund o.s.frv. Og það á ekki að sleppa jóla- og afmælisgjöfum, það má þá heldur gefa þeim minna eða eitthvað sem þau raunverulega vantar.
Ef einhver vill kíkja á þetta forvarnarstarf þá er heimasíðan þeirra marita.is
Later

Ummæli