Er að reyna að vera dugleg - það er bara of mikið að gera á þessu litla heimili að staðaldri. Skil ekki hvernig fólk fer að því að báðir foreldrar vinni fulla vinnu og eftirvinnu og aukavinna og svo aðra vinnu á kvöldin. Held þetta sé eitthvað að róast samt. Er að reyna að skipuleggja mig og fara eftir dagsplaninu. Það gengur svona misjafnlega - ég er engin Helena ;o)
Ætlaði í morgun í líkamsrækt í tíma - prófa það aftur og gá hvort kroppurinn þoli það. EEEnnn KEB átti tíma hjá tannréttingalækni og því datt það upp fyrir. Planið að fara þá seinnipartinn í staðinn. Er við komum heim fór ég í smá göngu með Ronju svo hún gæti aðeins hreyft sig. Fór svo í vinnuna rétt aðeins að klára smávegis tók svo voffa greyið og fór í Þjóðskjalasafnið að reyna að byrja. Hún var úti í bíl allan tímann - frá kl. rúmlega 11 til kl. 14:30. Það heyrðist ekki píp í henni - bara chilla. En minns var með mega samviskubit, sérstaklega þegar krakkarnir voru komnir heim og hún enn úti í bíl. Hefði frekar viljað að hún væri heima hjá þeim þá.
Mér gekk svona og svona að byrja á því sem ég er að gera. Þetta verður auðveldra eftir því sem ég verð duglegri og vanari þessari vinnu. Var að lesa texta af skjá á svona gamaldags græju - æ þið vitið svona af filmu, eins og maður sér í bíó en heldur að maður komi sennilega aldrei til með að nota sjálfur. Anyways komst aðeins áleiðis en var orðin ansi þreytt í augunum. Varð alveg rangeygð af þessu glápi og ekki hjálpar hvað ég er léleg í að lesa þetta - staulast samt áfram. Augun eru eiginlega ennþá í kross eftir daginn - næstum því! Fer aftur á morgun - verð sennilega þarna næstu vikurnar mikið.
BH var að spyrja mig hvað ég hefði verið að gera í dag - aðeins að sýna áhuga. Og ég lýsti þessu - lesa texta af skjá, frekar þreytandi til lengdar og minns að sofna í alvöru á tímabili. Magnað þegar höfuðið kippist upp aftur þegar það hefur sigið aðeins of mikið án þess að ég tek eftir því. Hann var nú ekki lengi að átta sig - "Af hverju sendir þú ekki textann í tölvupósti bara og lest þetta heima?" Málið leyst, hann tilkynnti mér að það væri örugglega takki bara á hliðinni til að græja þetta. Gat ég annað en hlegið? Ætla að bjóða honum með mér og sýna honum tækjakostinn - trúið mér, enginn takki - ekkert E-mail - ekkert net (svo ég viti).
Ekki fórum við hjónin seinnipartinn í líkamsrækt - surprise surprise! Fengum okkur kvöldmat og drifum okkur svo - alltaf að vera sveigjanlegur og tilbúinn að breyta planinu, annars gerði ég aldrei neitt af því sem ég ætla.
Planið á morgun er svipað og í dag - sjáum hvernig það á eftir að ganga!
Later

Ummæli