Vaknaði í morgun allmiklu skárri en í gær. Ekki þessi hálsverkur og pirringur. Svaf með buffklút um hálsinn - svínvirkar þegar maður er kvefaður. Margoft búin að prófa það. Amma hans BH kenndi mér þetta fyrir mörgum árum.
Tilkynnti BH þetta í morgun en tók jafnframt fram að röddin væri verri - dálítið hás. Fékk svar sem við mátti búast - já er þá ekki tilvalið að þú þegir í dag?
Ætlaði í hádeginu á fyrirlestur hjá Sagnfræðingafélaginu en ákvað að spara mér bensínið eftir að hafa haft mig til. Hlusta á þetta á netinu í staðinn. Vann frekar í ritgerðinni hérna heima og fór svo ein upp á Lágafellið með Ronju. Aðeins að leyfa henni að hlaupa, hún er miklu sáttari á kvöldin eftir að hafa fengið að hlaupa um.
Þetta gekk ljómandi vel, var hrædd um að lenda í veseni kannski ef við myndum hitta eitthvað fólk. Hún er svo forvitin, rýkur á allt sem er spennandi. Hún spókaði sig þarna á öðru hundraðinu á milli þess sem hún kastaði mæðinni smá stund. Magnað hvað smá snjór getur verið skemmtilegur. Svo þurfti að elta eina rjúpu eða tvær og slatta af smáfuglum. En bjartsýnin var kannski fullmikil þegar við stóðum þarna efst uppi og hún ákvað að elta krumma sem var þarna í útsýnisflugi, aðeins of hátt til að hún ætti séns.
Við HMS og AFD ásamt Ronju fengum okkur göngutúr til tengdó - smá kaffihitting. Þannig að voffinn ætti að vera sáttur eftir töluverða útiveru í dag.
Later

Ummæli