Fara í aðalinnihald

Villingur

Á hvolpanámskeiðinu sagði annar leiðbeinandinn við mig að það væri alltaf einn hrekkjupúki á hverju námskeiði og að við ættum þennan eina í þetta sinn. Við BH glottum og vorum mjög hissa - hvað segirðu, okkur grunaði það nú ekki :o)

Ég er samt ánægð með hana - hér var allt í drasli í gær. Við SBK dreifðum úr okkur með föndurdót og vorum eitthvað að þykjast, eða ég var að þykjast hún var að búa til rosalega flott jólakort. SBK hafði orð á því að henni þætti merkilegt að Ronja léti þetta allt saman í friði bara. Jú ég hef ekki staðið hana að því að tæta neitt þó það sé drasl á gólfunum, skórnir okkar og flíkur hafa sloppið alveg hingað til. Hún fær bara sitt nagdót og hefur látið það duga.

Það á ekki að tala um svona - bara vera ánægður með ástandið og þegja. Í morgun þegar við KBB vorum að taka til hérna hjá okkur kom ég að Ronju með Celebration nammimola í kjaftinum - alsæl með súkkulaðið að bryðja pappírinn utan af. Reif þetta útúr greyinu sem var ekki ánægð. Mundi að það má ekkert vera á stofuborðinu svona spennandi því hún nælir sér í það. Rifjaði upp fallega súkkulaðibrosið sem blasti við mér er ég opnaði augun einn morguninn er við bjuggum í Florida. KEB var svo sæll með gotteríð sem hann náði sér í. Þá hafði pabbi hans skilið eftir M&M á stofuborðinu sem snáðinn náði sér í.

Er ég kom að hundinum svo aftur núna á sama stað og áðan þá var hún að naga í tætlur sprittkerti sem hafði hrunið af kertastjaka eftir að ryksugan athafnaði sig hérna fyrr í dag. Hundmóðguð er ég reif þetta af henni og skammaði greyið AGAIN.

Þannig að nú er ég hætt að tala um að hún láti allt í friði hérna - vona bara að hún haldi því áfram og ég ætla að vera áfram dugleg að útvega henni það sem má naga í friði.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...