Fara í aðalinnihald

Laus Voffi

Fór í vinnuna í morgun með hundinn. BH var hérna en DH var fjarri góðu gamni með veikan pjakk heima. Hundurinn fékk því að skoða sig aðeins um, er annars bundinn hérna inni hjá okkur. Var eitthvað fúl yfir að vera bundin svo við leyfðum henni að skottast um. Vissum alveg að þegar hún væri búin að þefa nóg hérna út um allt þá myndi hún leggjast niður og hvíla sig á góðum stað, sem hún gerði.

Eftir hádegið kom DH - Ronja ekki sátt við að vera bundin þá svo ég leyfði mér að losa hana og vonaði að hún myndi bara leggjast og láta lítið fyrir sér fara eins og áður. NII ekki að gera sig - hún stökk hérna eitthvað af stað og skrensaði svona smart á parketinu þannig að við BH skelltum uppúr, því við vorum að fylgjast með.

DH hins vegar var í alvöru að vinna og spyr svona í rólegheitum "voru þetta nokkuð skórnir mínir?" Hélt kannski að krílið væri að smjatta á þeim. Við BH vorum fljót að svara honum neitandi - bæði í kór. Ég sagði honum svo í framhaldi - "ef þetta hefðu verið skórnir þínir þá hefðum við ekki hlegið - við værum skíthrædd". Og ég var ekki að grínast :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...