Þar kom að því - fyrsta stóra skemmdin í tönnunum. Og það dálítið mér að kenna. Dæmigert að þær séu að skemmast núna þegar ég var svona að skipta um tannlækni og vissi ekki hvert ég átti að fara. Minn læknir er orðinn of gamall - hættur að sjá nokkuð held ég. Tvö ár síðan ég fór síðast og þá var mér sagt að það þyrfti að gera við fljótlega :o/ Þá hefði þetta verið minna. En þetta slapp - engin rótfylling eða neitt slíkt.
Kann ekkert á þetta og hélt að ég myndi núna líta tannlækna hornauga eins og margir aðrir. En það er nú ekki raunin. Var ekki mikið mál. Skoppa þarna áhyggjulaus að ári. Var deyfð, hjúkk - spurði eftir aðfarirnar hvort fólk væri í alvöru að gera þetta án deyfingar. Hann vildi nú meina að svo væri ekki, það væri bara ef verið væri að laga smáskemmdir. Alls konar járnarusl á tennurnar og svona... frekar óþægilegt nema af því ég var dofin. Get kannski sagt núna að ég sé dofin í hausnum, dofin í vinstri efri kjálkanum og ennþá dofin hægra megin í neðri kjálkanum og niður á háls eftir afrek sumarsins.
Veit ekki hvað fólk er að væla yfir deyfingu hjá tannlækni - fann ekkert fyrir henni. En kannski skiptir máli hvar er deyft - t.d. örugglega ömurlegt ef verið er að deyfa góminn :o/ Finn ekkert fyrir þessu, ímyndaði mér bólgna kinn og slefandi mig eitthvað fram eftir degi. Það er einhver misskilningur!
Í fyrsta sinn er ég að borga fyrir tannlæknaþjónustu og held ég geti sagt að þetta hafi kostað mig meira en ég hef borgað samanlagt á ævinni í tannlæknakostnað fyrir sjálfa mig. Kemur til af því að það hefur aldrei verið gert við áður og minn gamli tannlæknir rukkaði mig aldrei krónu :o)
Fór um daginn í skoðun og kvartaði yfir annari framtönninni, sem ekkert virðist að. Teknar voru röntgen myndir og þegar hann kom tilbaka sagði hann "það þarf bara að taka hana" LoL - Vön svona húmor glotti ég bara vitandi að það væri kannski full dramatískt. En brandarinn varð enn fyndnari þegar ég sagði tengdó og mömmu þetta... búin að segja þeim að það væri ekkert að og svo brandarann seinna í samtalinu og þær hváðu báðar í sjokki. Sáu fyrir sér tannlausa mig, og ég var ekki einu sinni að reyna vera fyndin.
En ég hef sagt það áður og segi það aftur (í gríni) hef haft svo heilar tennur og lítið haft fyrir þessu að ég enda sennilega tannlaus um fimmtugt! Helv... geislajoðið, kenni því um. Snarbreyttist ýmislegt eftir þriðju umferð af því!
Later

Ummæli