Þeim tókst það loksins, mikið hljóta þau að vera glöð!
Nú þarf ég að vinna hratt í því að hrista á mér rassinn (allann kropinn) og ná mér í smá þol. Byrja strax núna, ef ekki þá alla vega á Sunnudaginn. Þá verður gengið á Úlfarsfellið.
Pabbi hringdi áðan og ég fékk nákvæmlega tíu mínútur til að ákveða hvort ég myndi ekki bara skella mér á skíði með þeim 29. janúar - 5. febrúar. Neee veit ekki sko. Talaði svo við Magneu sem sagði mér að hypja mig upp í vél og út. BH sagði það sama. Svo ég þori ekki annað en að hlýða og er því búin að segja já takk ég ætla að skella mér með.
Þau eru búin að reyna í mörg ár að drífa mig með, og alla mína fjölskyldu. Það er ekki eins og mann hafi ekki langað en við höfum ekki látið verða af því.
Þannig að nú hefur sá sögulegi árangur náðst í fjölskyldunni að drífa mig á skíði í útlöndum. Veit ekki alveg hvert en geri ráð fyrir Ítalíu. Verð bara að treysta þeim.
Verður áhugavert því ég hef ekki skíðað síðan áður en ég fékk bílpróf og gömlu skíðin mín eru ekki hæf lengur - dáldið rispuð eftir smá steinaslys. En Ma lánar mér örugglega gömlu skíðin sín ef ég bið fallega :o)
Later

Ummæli