Vona það alla vega - fer í nótt út á völl og flýg snemma í fyrramálið. Öll svör mín við spurningum um þessa ferð hafa verið á einn veg "ég bara veit það ekki" - "ég man það ekki" - "ég hef ekki gáð að því" og "nei ekki ennþá".
Nei ég var ekki byrjuð að pakka, fyrr en seinnipartinn í dag. Ég man ekki hvað staðurinn heitir þar sem við verðum, það er samt búið að segja mér það alla vega þrisvar og ég veit að það er í Ítalíu. Nei ég veit ekki hvenær er flogið í fyrramálið, veit að ég þarf að vakna snemma og verð sótt um fimmleytið. Nei ég veit ekki hvenær dags ég kem 5. febrúar.
Mikið verð ég bara glöð þegar ég verð búin að pakka almennilega og ákveða hvað fer ofaní töskuna, komin út á völl og get bara tjillað aðeins.
Öll vikan hefur snúist um að klára allt í vinnunni fyrir mánaðarmót, vsk og áramótadót eitthvað. Svo hefur maður aðeins verið að reyna að hafa þvottakörfuna tóma, aðeins að halda í horfinu hérna þó ég hafi nú ekki nennt að þrífa sérstaklega.
Frétti það svo áðan að höskarnir verða í Landanum á sunnudag og ég missi af því - eða sko það verður tekið upp, en mig langar að sjá það strax :o/ Kannski kemst ég í tölvu þarna úti og get kíkt á netinu :o) Hlakkar mikið til að sjá hvernig það kemur út!
Svo gúdbæ, orevor, farvel, tush og það allt :o)
Later

Ummæli