Sömu trikkin - nýr hvolpur
Hann er fjögurra mánaða, hálfbróðir Úlfs og skuggalega líkur þessum stóra. Sömu litir í þeim báðum. Fullur af fjöri, búinn að klóra aðeins í handabakið á mér þegar ég var að leika við hann. Nú eru þeir hálfbræður úti í gerði að takast á. Þessi stóri að kenna þeim litla að hemja sig, og að sá stóri ræður. Sá litli að takast á við hræðslukastið og færa sig upp á skaftið. Kominn upp á kofa að spóka sig með þeim stærri og horfa á lífið í kringum sig.
Ronja fékk ekki að vera með í leiknum að sinni. Mér fannst of mikið að hafa tvo stóra úlfa níðast á þeim minni. Hún liggur hérna hjá mér frekar fúl að þurfa að vera inni. Tók hana góða stund að sætta sig við að ver hér hjá mér þegar fjörið er klárlega úti. Ætli ég taki Úlf ekki inn í smá stund á eftir og setji Ronju hjá krílinu í staðinn. Vona að þau taki út þörfina fyrir að siða greyið til þarna úti. Nenni ekki svona látum hérna inni :o)
Later

Ummæli
Viktor heppinn að hafa ykkur!