Fara í aðalinnihald

Hlunkar

Fór að gamni áðan í Dýramiðstöðina í Grafarholti - þar er stór vigt og mig langaði að vigta krílin mín. Sjá hvort Ronja hafi þyngst síðan í des/jan og hversu rosalega Úlfur hafi þyngst á þessum fáu mánuðum.

Það er sjáanlegur munur á þeim, Úlfur hefur stækkað mikið og er nú orðinn stærri en tíkin. Og þyngri - jamm ÞYNGRI.

Hún hefur alveg haldið þyngd síðan um átta mánaða aldurinn - er enn 19,7 kg. En hann er orðinn 20,4 kg. og hann á bara eftir að þyngjast þessi elska.

Úlfur hefur þyngst hratt - 22. des var hann 6 kg. - 12. jan 9,1 kg - 13. feb 13,7 kg. og svo núna 22. apr er hann orðinn 20,4 kg. Og samt er hann bara músin mín :o) Ferlega fyndinn flækjufótur :o)

Fékk upplýsingar í leiðinni um ófrjósemisaðgerðir fyrir tíkur - Ronja verður sennilega tekin úr sambandi í maí. Það er góður tími fyrir hana og gott að hún sé bara búin að lóða einu sinni. Minnkar líkur á krabbameini í leginu ef það er gert svona snemma! Eftir annað lóðarí eða þriðja þá skiptir það ekki lengur máli - þ.e. minnkar ekki líkur á þessu krabbameini lengur.

Það er ómögulegt að hafa rakka og tík á sama heimili þegar tíkin er að lóða. Það er bara illa gert við dýrin að þola það þennan tíma. Kannski allt öðruvísi hjá ræktendum sem hafa ýmis ráð til að skilja dýrin að - eða alla vega gera ráð fyrir þessu raski. Og við erum ekki að fara útí það að fá hvolpa á heimilið. Það finnst öllum það voða freistandi hérna - nema mér - að fá hvolpa. Við vitum öll hver myndi sjá um þá vinnu og það er ekki svo lítil vinna. Örugglega mjög skemmtilegt allt saman, en gæti líka endað með ósköpum. Maður veit það aldrei fyrirfram. Svo held ég hreinlega að ég gæti ekki selt dýrin. Og við myndum enda með sex til tíu hunda hérna - nei held bara ekki. Þarf að hafa alveg nóg fyrir þessum tveimur, látum það duga :o) Þrátt fyrir að KBB hafi áðan séð í hyllingum hérna Ronju hvolpafulla og svo fullt af krúttum og við myndum að sjálfsögðu HALDA EINUM EFTIR - já nei takk, sama og þegið. Ætla frekar bara að komast í að knúsa þessi kríli hjá öðrum :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...