Fara í aðalinnihald

Baka vandræði

Við KBB vorum að baka köku sem við höfum ekki smakkað áður. Lítur voðalega vel út í litlu Nóa og Síríus hefti. Leist nú ekki alveg á það að skera einn botn í fjóra - en lét mig hafa það og það tókst ágætlega. Hver botn er heldur þunnur samt. Svo átti að búa til svona súkkulaðirjóma á milli - þrjár týpur, dökkt súkkulaði, rjómasúkkulaði og hvítt súkkulaði. Bara girnilegt - við redduðum þessu mæðgurnar í þrjár skálar og ég fór í það mál að skella þessu á milli. Fannst heldur mikið af rjóma miðað við hversu þunnir botnarnir voru. Oh well - látum þetta virka. Svo þegar ég var búin að þessu sá ég aðeins á uppskriftina - já nefnilega það. Tveir og hálfur dl rjómi + súkkulaði. Hmmm og ég búin að skella súkkulaðinu saman við hálfan lítra af rjóma. Þannig að í stað þess að vera um þrír fjórðu af rjóma á blessaðri kökunni þá er einn og hálfur lítri. Varð nett pirruð á sjálfri mér fyrir að lesa ekki uppskriftina betur - beit bara í mig að svona ætti þetta að vera þegar ég keypti allt í þessa köku og las þetta ekki betur eftir það. Karlottu fannst þetta mátulega fyndið og fór að lesa þetta allt saman, kallaði svo á mig hlæjandi - heyrðu mamma hér stendur að það sé gott að bera fram rjóma með þessari köku - við sleppum því bara er það ekki? He he.

Venjan er sú að þegar ég prófa að baka eða búa til eitthvað nýtt, þá er ég svo yfirmáta stíf á að fara nákvæmlega eftir uppskriftinni að það tekst allt ljómandi vel - það er ekki fyrr en í þriðja og fjórða sinn sem eitthvað klikkar hjá mér. Þá nefnilega er ég orðin svo góð með mig og hætt að líta svo oft á uppskriftina.

Viss um að þetta verði góð kaka en það er spurning hvernig gengur að skera kvikindið - kannski við bara náum okkur í skeið og étum hana beint bara. Þetta verður reynt aftur - viss um að þetta sé góð kaka - betra bara að gera þetta rétt - geri það næst. Bannað að gefast upp.

Héraðsstubbur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...