með grænum hænum fa la la la la - við KBB sitjum heima búnar að þrífa allt og nú erum við að klára að setja upp jólaskrautið á milli þess sem við sitjum og glápum á Tekinn og Stelpurnar í sjónvarpinu. Strákarnir stungu af í bíó, tóku Agnar og Pétur með sér, fóru að sjá Beowulf nýju þrívíddar teiknimyndina. Sá fyrir mér að ég myndi ekki nenna að taka ritgerðina upp og gera eitthvað af viti hér í kvöld þannig að ég ákvað að drífa þetta af. Rétt náði að plata BH út í Bermúda (bílskúr) að finna jólakassana svo ég þyrfti ekki að gera þetta á morgun. Nice - verður búið á morgun og ég get unnið samviskusamlega í ritgerðinni. Sé til hvort ég kíki á KEB keppa á aðventumóti Ármanns.
Verst að nú veit ég ekki hvað ég á að setja í eldhús- og stofugluggana. Komnar nýjar gardínur í eldhúsið og nú get ég ekki notað sama ljósadót og áður, það passar bara ekki . Ekki það skemmtilegasta sem ég geri að versla svona dót - sérstaklega þegar ég veit eiginlega ekki hverju ég er að leita að. Ég hlýt að detta niður á eitthvað - ljósin á þakkantinum verða að duga í bili. Plata BH til að setja þau út um helgina. Það er nýtt á þessu heimili að vera búin að þessu fyrir aðventuna - venjulega aulast ég í þetta fyrsta dag aðventu, svona þegar flestir slappa af við kertaljós og borða smákökur.
En ég hef nú ekki verið seinni en það til að koma ljósunum upp, þannig að ég er nú ekkert illa sein. Það stoppar nú samt ekki litlu drottninguna í að kveljast óskaplega og kvarta sárlega, venjulega í bílnum á leið heim, framhjá þeim fáu ljósum sem þegar eru komin upp, "við erum alltaf svo sein að setja ljós - það eru ALLIR búnir að jólaskreyta" Mér reiknast svo til að þetta sé fjórða árið sem ég fæ að heyra þetta - og í ár varð ég bara hundpirruð því mér finnst þetta ekki alveg sanngjarnt hjá framkvæmdastjóra fjölskyldunnar. Þannig að svarið sem hún fékk í ár var "Æ góða þegiðu, nenni ekki þessu röfli, við vitum báðar að þetta er ekki alveg svona slæmt" Hún átti ekki alveg von á þessum viðbrögðum - HA - var eina svarið sem ég fékk - við reddum þessu saman um helgina.
Og ég stóð við það þannig að allir ættu að geta verið sáttir. Nema BH (og ég) sem ætlum að finna eitthvað snyrtilegt í gluggana sem snúa að götunni. Spurning um að hann fari bara í pössun í einhverri góðri verslun á meðan ég ráfa um pirruð og þreytt til að finna eitthvað til að lýsa upp tilveruna hjá vegfarendum í Leirutanga.
Ljósálfur

Ummæli