Verð víst að lesa fyrir morgundaginn - vill til að þegar ég loksins sest niður og sökkvi mér í þetta þá er þetta ekki leiðinlegt.
Við krakkarnir þrifum hérna aðeins hjá okkur áðan - voða fínt að fá aðstoð að venju þá tekur þetta mun styttri tíma. Kjartan er búinn að vera að suða í mér að baka með honum rúllutertu sem honum þótti svo góð í heimilisfræði - hann kom heim með bókina núna fyrir helgi þannig að við létum verða af því. Gerðum tvöfalda uppskrift og þegar ég var búin að hella því á bökunarpappírinn á plötunni þá fer ég að yfirheyra drenginn hvort einfalda uppskriftin hefði ekki líka þakið heila plötu. Hann hélt það nú - yeb þannig að við fengum ansi þykka og veglega rúllutertu sem hefði vel dugað á tvær plötur. Þetta var ekkert verra - vitum bara betur næst þá gerum við tvær kökur úr þessu.
Ma og Pa komu við hjá okkur á og hjálpuðu okkur með kökuna. Nú er ekki mikið eftir, spurning hvort BH fái nokkuð að smakka því hann var farinn að vinna.
Farin að lesa...

Ummæli