Fara í aðalinnihald

Rólegheit á Sunnudegi

Í framhaldi af matarboði hjá Tengdó kom Anton til Kjartans og gisti hjá honum frá föstudegi til laugardags. Una gisti svo næstu nótt hjá Karlottu - fínt að fá svona aukabörn í heimsókn. Þetta eru svo stórir krakkar að við vitum ekki af þeim.

Kjartan tók þátt í fimleikamóti í Bjarkarhúsinu í Hafnarfirði. Hann stóð sig vel drengurinn, eins og alltaf. Hann komst ekki á pall, en það var nú enginn að halda það fyrirfram. Það kemur helst til af því að hann fór fyrir um þremur vikum í fyrsta sinn á þessi áhöld sem hann síðan keppti í áðan. Hringir, gólf, slá og hvað þetta heitir allt saman. Hann verður töluvert flottari að ári, þá búinn að ná betri tökum á þessu öllu saman.

Sunnudagurinn verður annars bara svona rólegheit - ég er að lesa og læra, BH að vinna, KEB búinn að læra og kría út úr mér að fá að fara í Playstation vélina eftir viku bann, KBB hjá Unu, eflaust að leika sér með PetShop leikföng.

Er svona að velta fyrir jólafötum á krakkana - KEB nennir ekki svona fatakaupum og stakk uppá að hann væri bara aftur í því sem hann fékk í fyrra. Hann mátaði án mótþróa fyrir mig fötin og þau passa svona ljómandi vel á hann ennþá. Þannig að það er búið að redda jólafötum á hann. Ég á örugglega eftir að skima eftir fötum á hann samt - kannski kaupa á hann jakka ef ég sé einhvern sem hlýtur náð fyrir augum mínum, svo vantar hann skó líka. Karlotta á svo fínt pils sem hún notaði á jólunum í fyrra (keypti tvö þá) Spá í að nota það kannski og fá nýja peysu, leggings og skó - alveg nýtt dress. Er ekki viss um að ég hætti mér með hana í bæinn að velja föt - við höfum ansi ólíkann smekk mæðgurnar. Þess vegna keypti ég tvenna spariskó í fyrra - ég valdi aðra þeirra en hún hina. Var svo heppin að þeir voru ekki mjög dýrir. En hún er alltaf alsæl með það sem ég kem með heim á hana ef ég fer bara sjálf. Kemst ekki upp með það mikið lengur samt.

Jóla hvað...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...