Fara í aðalinnihald

Allir góðir í einhverju...

en enginn góður í öllu.

Fór í foreldraviðtöl áðan með krökkunum - BH kom með okkur í þetta sinn. Allt gekk ljómandi vel - það eru reyndar alltaf sömu athugasemdirnir. Þau virðast ekki bæta úr því á milli ára. KEB flýtir sér oft einum of og gerir klaufamistök - eins klár og hann er þá koma klaufavillur honum stundum um koll - pirrar kennarana oft meira en hann. KBB eldklár og námið liggur vel fyrir henni - en hún á það til að nenna ekki, reynir að komast upp með að gera sem minnst. Þau eru bæði til fyrirmyndar í skólanum og hegðun þeirra alltaf góð. Þá er það komið á hreint.
Á leiðinni heim voru þau að plana hvað væri hægt að gera skemmtilegt og málið var að ég átti að sjá um að skemmta þeim. Varð að gera þeim ljóst að ég væri að vinna ritgerð sem yrði því miður að ganga fyrir.

KBB: Og hvað á hún að vera margar bls.?
LBK: um 20 bls. eða 5000 orð um það bil.
KEB: og um hvað ertu að skrifa?
LBK: Stjórnarskránna, endurskoðun hennar, umræður og þróun
KEB: HVAÐ ERTU BÚIN AÐ KOMA ÞÉR Í?

Í stuttu máli þótti syninum þetta einstaklega óáhugavert efni!

Núna er heim var komið fengum við okkur að borða, KBB settist svo niður að læra og KEB var svo elskulegur að hann er að ryksuga fyrir mig. Púff - ekki veitti af - það var orðið frekar slæmt ástandið á gólfunum hérna.
KBB er að gera stærðfræði og fær hjálp frá mömmu sinni (stærðfræðisnillingnum) og bróður sem er eldklár í stærðfræði.

KEB: Mamma heldur þú að ég sé betri í stærðfræði en þú?
LBK: Það þarf nú ekki snilling til að vera betri í stærðfræði en ég!!
KEB: Nú jæja HMM - af hverju er ég þá svona góður í stærðfræði?
LBK: Pabbi þinn er nú sleipur í stærðfræði og Brynja amma og fleiri
LBK: Ég er bara betri í einhverju öðru í staðinn kannski
KEB: Já já bara hefur alveg endalausa þolinmæði fyrir stjórnarskránna kannski.

Hann var enn að jafna sig á óspennandi verkefnum sem sett eru fyrir í Háskólanum. Spurning hvort hann nenni nokkuð í Háskólann þegar þar að kemur - sjáum til - hann stefnir alla vega þangað í augnablikinu.

Nú þarf ég að koma mér að verki ef ég að að eiga séns í að skila uppkasti á föstudaginn - er eiginlega komin í þrot með það - en sjáum til. Endanleg skil eru ekki fyrr en fyrstu vikuna í desember.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
[url=http://www.playatonlinecasinos.com/]casino online[/url] [url=http://www.casinovisa.com/]casino[/url] , [url=http://www.concordiaresearch.com/games/blackjack/index.html]casino bonus[/url] , [url=http://www.realcazinoz.com/du]casino[/url] , [url=http://www.avi.vg/category.php?a=sex4sexx&cid=669]vibrators[/url]

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...