Fara í aðalinnihald

Að vita meira og meira...

Ég er á kafi í frönsku stjórnarbyltingunni, las til klukkan 2 í nótt og átti að mæta klukkan 9 í morgun. Mikið lagt á sig - gat alla vega aðeins tekið þátt í umræðum eins og stefnt var að. Þessi saga byltingarinnar er mjög áhugaverð. Vildi að ég hefði tíma til að sökkva mér ofan í þetta og lesa meira en bara námsefnið - en það kemur með betri tíð og blóm í haga. Það er svo óendanlega margt sem mig langar að lesa meira um eftir þessa þrjá vetur í sagnfræðinni. Ekki alveg hægt að segja að námið sé einhæft, alla vega ekki efnið sem við erum að lesa. Allt frá torfkofum á Íslandi til trúabragða deilna nútímans. Er svona að gera það upp við mig hvort ég lesi aðeins meira núna eða drífi mig að klára verkefni sem ég er að leggja lokahönd á. Það er alltaf svo miklu einfaldara að setjast bara niður og lesa dálítið.

Dóttir mín komst að því í morgun að mamma hennar er ekki alveg að bulla þegar hún leggur áherslu á mikilvægi hreinlætis. Fór inn og ýtti við barninu í morgun, bað hana um að drífa sig í föt - skellti mér svo í sturtu og fór inn til hennar aftur til að vera viss um að hún væri að hafa sig til. "mamma það er eins gott að þú fórst í sturtu - það var hrikalega vond lykt af þér áðan" Ég þakkaði pent ábendinguna - en var að spá hvort ég væri svona mikill skunkur í morgunsárið? Ákvað að skella skuldinni á loftleysi í húsinu í morgun - allir gluggar meira og minna lokaðir í norðanáttinni og kuldanum í nótt hjá okkur. Spurning um hvort stelpan sé svona skemmtilega heiðarleg eða bara ferlega dónaleg barnið - ég vel heiðarleg - vona bara að hún hemji sig við aðra en foreldra sína þegar kemur að svona athugasemdum í framtíðinni.

Þau eru svo ólík systkinin á morgnana (og allann daginn og alltaf). Hún þarf gott spark í rassinn til að koma henni framúr - er alltaf til í að kúra aðeins lengur, dálítið lík mömmu sinni. En drengurinn sprettur upp við fyrsta hvísl, þ.e. ef ég næ að vera á undan honum framúr. M.a.s. í nótt er ég var að gera tilbúið fyrir morgunin þá rumskaði hann og fór að líta á klukkuna og svo 5 mín. seinna er BH var frammi þá spratt barnið upp í ofboði - hefur örugglega hugsað að fyrst pabbinn væri kominn á fætur þá hlyti hann að hafa sofið yfir sig. Annars eru þeir feðgar líkir að þessu leyti - því BH var alltaf fyrstur á fætur á morgnana er hann var krakki. Nú hefur þetta aðeins snúist við því ég þarf að koma öllum út hérna á morgnana meðan BH sefur aðeins lengur. Mesta furða hvað það hefur gengið ágætlega.

Au Revoir

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...