Karlotta sá um það þessa helgi. Hún tók þátt í skákmóti á laugardaginn, vann þrjá vinninga og fékk verðlaun, 3000 kr. í blómabúð í Grafarvogi. Hún telfdi fjórar skákir og vann tvær - sá fimmti mætti ekki og því "vann" hún þá skák.
Jólabingó Lágafellsskóla var svo í gær og daman gerði sér lítið fyrir og fékk Bingó í 3. umferð - ein með Bingó og því fékk hún þann vinning án þess að þurfa að draga um hann á móti öðrum. Svo var 10. umferðin mest spennandi, þau systkin voru bæði með eina tölu eftir, útséð með að hún ætti séns því það kom G..... og svo hennar tala - hann átti eina eftir í I og því útséð með að hann fengi ekki Bingó - svo hann studdi litlu systur sína og þokkalega sem þau voru ánægð. En nú voru fimm með Bingó - ekki bara hún og þá var dregið um vinninginn. Bara einn sem fær og hinir fengu aukavinning. Og hún gerði sér lítið fyrir og dró hæsta númerið, verð að viðurkenna að ég var verulega hissa. Það er ekki venjan að við fáum svona stóra vinninga þó KEB hafi nú stundum verið heppinn í svona.
Nú er holið hjá mér fullt af alls konar dóti sem leyndist í þessum vinningspokum - krem og sápur, bók, vettlingar, húfur, derhúfur, leirengill, leirkertastjaki, íþróttapokar og fleira.
Það fór öll helgin hjá mér í að sinna börnum og búi þannig að til að ná að lesa fyrir tíma í morgun þá sat ég til klukkan 2 í nótt. Hefði átt að sitja bara lengur því ég hafði fengið mér orkute eitthvað um miðnætti og ætlaði aldrei að sofna, held ég hafi lognast útaf um 15:30. Það er mikið afrek hjá mér að vera andvaka ég man bara ekki eftir hvenær það gerðist síðast, það er venjulega Baldvins hlutverk á okkar heimili - verst að hann var steinsofandi.
KEB var svo busy þessa helgi að hann var alveg í flækju og sálaangist krakkinn - margt í gangi og ekki séns að hann gæti gert allt. Það endaði þannig að hann fór í Vatnaskóg kl. 17:30 á föstudaginn, missti þannig af fimleikum og afmæli hjá bekkjarfélögum sínum. Þeir áttu að koma heim um kl. 17 á laugardaginn en hann var svo svekktur að missa af bæði stuttmyndanámskeiðinu (sem átti að vera búið núna) og fimleikum og afmæli hjá bekkjarfélaga sínum. BH aumkaðist yfir krílið og sagðist skyldu ná í hann í Skóginn kl. 9 á laugardagsmorguninn svo hann gæti farið kl. 10 á námskeiðið, það var nefnilega verið að fara í það að klippa og það var helsta ástæðan fyrir að hann skráði sig. Svo voru fimleikarnir kl. 13, hann búinn að bíða spenntur að mæta því hann afrekaði tvo hringi í ???? man aldrei hvað þetta heitir. Þið vitið svona þar sem drengir eru með stífann kroppinn og sveifla sér í hringi - venjulega sé ég þetta á hesti, en þeir gera þetta á svona sveppi (kallast sveppur - svona eins og kollur í laginu, bara breiðara.) Og á laugardaginn afrekaði hann þrjá hringi svo nú er bjart yfir drengnum, jafn bjart og það verður svart þegar hann er ekki að ná að gera eitthvað sem hann er að æfa.
Púff ætlaði ekki að skrifa svona mikið - hætti núna, nennir enginn að lesa svona langlokur - síðasta vikan í skólanum núna - á 3 tíma eftir og þá er ég done, svo það er best að lesa fyrir þessa tíma til að vera tilbúin - á að vera með smá framsögu á morgun um ritgerðina mína - sem er bara hálfnuð þannig að það er um að gera að koma einhverju á blað til að blaðra á morgun. Var með framsögu á föstudaginn var líka - það var miklu meira, með power point og alles - gekk bara vel. Fáir mættir, það var svo ógeðslegt veður og myrkur - kl. 8:20 - nennir enginn að mæta :o)
Later

Ummæli
kv Fríðan