Október er bleikur mánuður, sonur minn verður ánægður þegar hann uppgötvar það :o). Í þessum mánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini og öllu krabbameini bara held ég. Ég var að heyra af konu sem greindist með heilaæxli í fyrravor. Þessi kona hefur unnið í Lágafellsskóla svo ég var óskaplega miður mín síðasta haust þegar í ljós var komið að ekkert væri hægt fyrir hana að gera. Áðan frétti ég af henni aftur, hún er búin að vera í fríi frá vinnu allt síðasta ár. Meðferð hennar gekk út á að minnka æxlið til að hægt væri að skera það í burtu, það virtist ganga ágætlega og fyrr í vikunni átti hún að fara undir hnífinn. Læknar tóku myndir af lunganu hennar og í ljós kom að þar var æxli sem ekki var vitað um áður. Í framhaldinu komust menn að því að aldrei hafi verið um heilaæxli að ræða, heldur bara æxlið í lunganu. Skil þetta ekki alveg en svo virðist sem boðefni frá æxlinu berist til heilans og verði til þess að heiladingullinn bólgnar upp og líti út fyrir að vera æxli. Í stuttu máli var hætt við skurðinn og annar undirbúinn í hvelli. Held að hún sé búin í aðgerð og að æxlið í lunganu hafi verið fjarlægt og öllum létt því vonandi hafa læknarnir rétt fyrir sér að þetta sé staðbundið og nú sé þetta búið.
Ég varð voðalega glöð að heyra þetta, finnst alltaf jafn skelfilegt þegar ungt fólk á enga von um bata. Get ekki ímyndað mér hversu erfitt þetta s.l. ár hefur verið hjá henni. Óska þess að hún fái fullann bata og verði 200 ára lágmark og eigi gott líf með fjölskyldu sinni og vinum.
Fékk líka fréttir frá Jönu föðursystur minni (í Kanada) í vikunni um að Brent kærasti dóttur hennar sé laus við það krabbamein sem hrjáði hann. Öllum létt við þær fréttir.
Vona að fleiri séu að fá svona góðar fréttir eftir áföll vegna sjúkdóma, veitir ekki af miðað við hversu algengt þetta er orðið.
The optimist

Ummæli